Blik 1965/Yngvi Þorkelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1965



Yngvi Þorkelsson


Yngvi Þorkelsson.

Hér birtir Blik mynd af hagleiks- og leikhússmanninum Yngva Þorkelssyni, Vestmannaeying, sem getið hefur sér frœgðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum, ef svo mætti segja, á leiksviði L.V. í Vestmannaeyjum. Yngvi Þorkelsson fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur Þorkels Ólafssonar og Jóhönnu Guðmundsdóttur.
Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926, en áður hafði hann dvalizt nokkra mánuði í Kanada og m.a. lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf, sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga.
Árið 1928 keypti hann sér einkakennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt leikstarfinu í amerískum leikhúsum starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa sinna þar vestra. Í einu Vesturheimsblaðinu segir um þennan Vestmannaeying: Hann nýtur mikilla vinsœlda í stöðu sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af hugkvæmni hans og fjölhæfni í öllu, sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leikaragervum og margþœttum öðrum undirbúningi leiksýninganna, heldur og ekki sízt persónan sjálf, sérstök prúðmennska og jafnvœgi í skapgerð. Sjálfur er hann góður leikari.
Yngvi stundaði nám í 4 ár við listaháskólann The Comic School í Seattle, sem þá var talinn einna beztur sinnar tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist hann í júni 1933 með þann vitnisburð, að hann teldist fjölhæfasti nemandi skólans. Hann hlaut hæstu einkunn í leiklist 1932, og styrki hlaut hann úr tveim sjóðum hans.
Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir Friðriks Guðmundssonar, hins góðkunna verkamanns hér í Batavíu.
Bliki finnst rétt að geta Yngva Þorkelssonar með þessum orðum hins ameríska blaðs. Ungur Vestmannaeyingur fer allslaus út í hinn stóra heim og getur sér þar frægðar og frama.