Blik 1960/Hjónin frá Hellnahóli

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1960




Hjónin frá Hellnahóli


Bóndahjónin Ingvar Einarsson (f. 12. okt. 1864, d. 14. maí 1919) og Ástríður Sigurðardóttir, (f. 25. júlí 1859, d. 10. júlí 1937) að Hellnahóli undir Eyjafjöllum. Þessi hjón hafa skotið stoð undir athafnalíf Vestmannaeyja eins og fjöldi annarra bændahjóna af Suðurlandsundirlendinu, með því að þau eignuðust 7 börn, sem flest hafa starfað í Eyjum öll manndómsár sín, verið athafnasöm og heilladrjúgir þjóðfélagsþegnar...

Hjónin Ingvar Einarsson og Ástríður Sigurðardóttir.

ctr

Sex af börnum hjónanna í Hellnahóli, Ingvars og Ástríðar...
Aftari röð frá vinstri:
1. Sólrún, f. 9. okt. 1891. Gift Sveini Sigurhanssyni, f. 21. júní 1892. Börn: Ágústa, f. 24. febr. 1920, óg.; Berent Theódór, f. 21. ágúst 1926. Giftur Laufeyju Guðbrandsdóttur, f. 24. marz 1924; Garðar Aðalsteinn, f. 15. jan. 1933. Giftur Ólöfu Karlsdóttur, f. 10. júli 1935; Tryggvi, f. 20. júní 1934. Giftur Þóru Eiríksdóttur, f. 1. ágúst 1933.
2. Guðbjörg, f. 28. júní 1897. Gift Sveinbirni Einarssyni, f. 12. júní 1890. Börn: Fanney, f. 12. sept. 1918. Gift Gunnari Bogasyni frá Akureyri.
3. Dýrfinna, f. 7. júlí 1900. Gift Sigurði Gottskálkssyni frá Hraungerði í Eyjum, f. 23. ágúst 1894, d. 5. apríl 1955. Börn: Sigurást, f. 4. nóv. 1923. Gift Snorra D. Halldórssyni, f. 30. maí 1910; Ingunn, f. 7. júní 1926. Gift Þorsteini B. Sigurðssyni, f. 10. júní 1925; Sigurður Gotthard, f. 1. des. 1937. Giftur Oddhildi B. Guðbjarnardóttur, f. 10. okt. 1937.
4. Jóhanna, f. 13. okt. 1901, d. 1937. Gift Guðna Sveinssyni frá Norðfirði. Börn: Hjörtur, f. 7. júlí 1922. Giftur Jónu Magnúsdóttur, f. 10. júní 1922; Ástþór Guðnason, f. 1928.
Fremri röð frá vinstri:
1. Einar Ingvarsson, f. 10. okt. 1891, tvíburi við Sólrúnu. Giftur Guðrúnu Eyjólfsdóttur, f. 4. febr. 1898 að Mið-Grund undir Eyjafjöllum. Börn: Jóhanna Eygló, f. 19. sept. 1927. Gift Steingrími Arnar, vélstjóra; Ástþór Ingvi, f. 18. júní 1930.
2. Ágúst Ingvarsson, f. 27. júní 1890.

Hjónin frá Hellnahóli fluttu búferlum til Vestmannaeyja árið 1909 og leigðu í húsinu Bræðraborg. Árið eftir dó Ingvar bóndi. Þrátt fyrir mikla ómegð voru hjónin bjargálna allan sinn búskap og fremur veitendur en þiggjendur.