Blik 1946. Ársrit/Eyjatíðindi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1946


Eyjatíðindi
I.
SJÓÐIR GAGNFRÆÐASKÓLANS 31. DES. 1945:
a) Minningarsjóður Þórunnar Friðriksdóttur frá Löndum: Í bók nr. 24 í Sparisj. Vestmannaeyja kr. 843.46
Á skírteini nr. 35 í Útvegsb. Íslands í Vestm.eyjum kr. 1.289,13
Samtals kr.2.132,59
b) Minningarsj. Hermanns Guðmundssonar frá Háeyri:
Í bók nr. 25 í Sparisj. Vestmannaeyja kr. 1.115,69
Í bók nr. 4927 í Útvegsb. Íslands í Vestm.eyjum kr. 703,41
Samtals kr. 1.819,10
c) Minningarsjóður Hauks B. Lindbergs:
Í bók nr. 265 í Sparisj. Vestmannaeyja kr. 1789,49
Alls kr. 1.789,49
d) Ferðasjóður nemenda:
Í bók nr. 3306 í Útvegsb. Íslands í Vestm.eyjum kr. 631,86
Alls kr. 631,86
e) Smásjársjóður:
Í bók nr. 78 í Sparisj. Vestmannaeyja kr. 560,00
Alls .kr. 560,00
f) Blaðsjóður:
Í bók nr.78 í Sparisj. Vestmannaeyja kr. 1.256,68
Alls kr. 1.256,68
g) Umbótasjóður skólans:
Í bók nr. 77 í Sparisj. Vestmannaeyja kr. 356,09
Í bók nr. 4698 í Útvegsb. Ísl. í Vestmannaeyjum kr. 1.141,28
Á skírteini nr. 36 í Útvegsb. Ísl. í Vestm.eyjum kr. 1.257,27
Samtals kr. 2.754,64

Sjóðir Gagnfræðaskólans nema því samtals kr. 10.944,36.
Ætlunin er, að samin verði sérstök reglugjörð fyrir minningarsjóði skólans. Vöxtum af þeim sjóðum og öðrum minningarsjóðum, sem myndast kunna í skólanum, skal varið til styrktar efnilegum unglingum hér í Eyjum til framhaldsnáms, svo sem menntaskólanáms, háskólanáms og sérnáms til eflingar atvinnulífi Eyverja.
Við höfuum notið góðvildar og skilnings ýmissa mætra manna og kvenna hér um söfnun þessara sjóða.
Ég geng hreint til verks: Eyjabúar! Gefið fé í þessa sjóði. Það er ykkur sómi að efla þá. Æskan okkar og Eyjarnar njóta þeirra, þá tímar líða.

Þ.Þ.V.
II.
ÁRSFAGNAÐUR GAGNRÆÐASKÓLANS

Síðan árið 1930, að Gagnfræðaskólinn var stofnaður, hafa nemendur hans ávallt minnzt sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar með því að halda ársfagnað skólans 1. des. ár hvert. Þá er oft glatt á hjalla, þótt undirstraumurinn sé alvarlegs efnis.
1. des. s.l. brugðu nemendur Gagnfræðaskólans ekki vana sínum í þessu efni. Atriðaskrá sú, sem hér er birt, gefur hugmynd um skemmtunina:
1. Ávarp (Ragnheiður Sigurðardóttir).
2. Minni dagsins (Guðj. Kristóferss. form. Málfundafél. skólans).
3. Söngur, II. bekkjar kórinn.
4. Minni skólans (Páll Steingrímsson).
5. Minni drengja (Jórunn Helgadóttir).
6. Minni stúlkna (H. Bernódus Þórarinsson).
7. Söngur, I. bekkjar kórinn.
8. Minni bænda (Halldór Hermannsson).
9. Minni sjómanna (Sigtryggur Helgason).
10. Minni Eyjanna (Ágúst Kristmanns).
11. Hljómsveit skólans.
12. Leikþáttur.
13. Útvarpsþáttur.
14. Dans. — Veitingar. —
Ræðumenn voru nemendur úr öllum bekkjum skólans. Minnin voru stutt, en efni athyglisvert, — alvarlegt og hnyttið eftir ástæðum, — og vel flutt.
Leikþátturinn féll niður að þessu sinni sökum lasleika.
Skólastjóri stjórnaði ársfagnaðinum.

Einn af hinum boðnu, með þakklœti.
III.
ÞING S.B.S.

14. þing Sambands bindindisfélaga í skólum var haldið í Reykjavík dagana 19. og 20. janúar síðastliðinn.
Þessir æskumenn héðan voru fulltrúar Gagnfræðaskólans á þinginu:
1. Guðni Gunnarsson, Menntaskólanum.
2. Theódór Georgsson, Verzlunarskólanum.
3. Áslaug Johnsen, Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
4. Björgvin Torfason, Verzlunarskólanum.
5. Arnbjörn Kristinsson frá Hvíld.

IV.
GÓÐ GJÖF.

Sigurgeir Sigurðsson, Boðaslóð, hefur gefið Gagnfræðaskólanum eggjasafn. Við kunnum þessum unga manni beztu þakkir fyrir hugulsemina og velvildina.

Þ.Þ.V.
V.

Síðastliðin 11 ár hafa útskrifazt úr barnaskólanum í Vestmannaeyjum þessi barnafjöldi:

Árið 1934-1935 útskrifuðust 71 barn
—--- 1935-1936 ------------- 72 —
—--- 1936-1937 ------------- 71 —
—--- 1937-1938 ------------- 70 —
—--- 1938-1939 ------------- 73 —
—--- 1039-1940 ------------- 84 —
—--- 1940-1941 ------------- 62 —
—--- 1941-1942 ------------- 70 —
—--- 1942-1943 ------------- 73 —
—--- 1943-1944 ------------- 66 —
—--- 1944-1945 ------------- 83 —

Samtals 795 börn


VI.
SKÓLASKYLD BÖRN Í VESTMANNAEYJUM 1934-1944


Árið 1934-1935 voru skólaskyld 475 börn
—--- 1935-1936 ------------------ 457 —
—--- 1936-1937 ------------------ 541 —
—--- 1937-1938 ------------------ 549 —
—--- 1938-1939 ------------------ 549 —
—--- 1939-1940 ------------------ 548 —
—--- 1940-1941 ------------------ 513 —
—--- 1941-1942 ------------------ 507 —
—--- 1942-1943 ------------------ 500 —
—--- 1943-1944 ------------------ 489 —
—--- 1944-1945 ------------------ 460 —

VII.
MANNFJÖLDI Í VESTMANNAEYJUM SÍÐASTLIÐIN 7 ÁR
Árið Karlar Konur Alls
1939 1771 1782 3553
1940 1769 1787 3556
1941 1749 1797 3546
1942 1729 1785 3514
1943 1747 1789 3536
1944 1784 1813 3597
1945 1764 1794 3558
VIII.
FERMD BÖRN Í VESTMANNAEYJUM 1934-1945
Árið Drengir Stúlkur Börn alls
1934 27 31 58
1935 33 32 65
1936 34 39 73
1937 28 38 66
1938 32 36 68
1939 34 35 69
1940 47 33 80
1941 33 33 66
1942 33 35 68
1943 30 43 73
1944 32 32 64
1945 40 38 78
IX.
ÁFENGISNEYZLA Í VESTMANNAEYJUM 1928-1945

Árið 1928 kr. 120.725,00
—--- 1929 --- 123.529,00
—--- 1930 --- 113.847,00
—--- 1934 ---- 96.000,00 (síðasta bannárið)
—--- 1935 --- 178.506,00 (fyrsta ár eftir afnám bannsins)
—--- 1936 --- 152.030,00
—--- 1937 --- 158.634,00
—--- 1938 --- 164.847,00
—--- 1939 --- 181.009,00
—--- 1940 --- 227.920,25
—--- 1941 --- 165.105,00
—--- 1942 --- 253.181,50
—--- 1943 --- 590.161,50
—--- 1944 - 1.115.234,00


X.
ÚTFLUTTUR ÍSVARINN FISKUR FRÁ VESTMANNAEYJUM ÁRIN 1944 OG 1945
Mánuður Árið 1944, kg. Árið 1945, kg.
Janúar 145.776 420.442
Febrúar 1.956.539 1.149.685
Marz 5.355.694 4.475.050
Apríl 4.953.545 5.321.503
Maí 1.123.328 1.395.623
Júní 793.200 619.411
Júlí 626.961 509.766
Ágúst 193.063 490.453
September 101.202 303.010
Október 53.400 297.306
Nóvember 41.400 105.139
Desember 43.372 45.460
Alls 15.387.480 kg 15.132.848 kg
Verðmæti kr. 11,2 milljónir kr. 11,3 milljónir
Ísfisksamlagið.
XI.
SKÝRSLA

yfir fjölda báta ásamt vélarafli og brúttó-burðarmagni í nokkur ár hjá Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja.

Ár- Bátafjöldi Tonn- Vélaorka --Heildarmagn kr.
1935 — 80 — 3574 — 1216 — — 1.341.640,00
1936 — 77 — 3598 — 1201 — — 1.570.790,00
1937 — 80 — 4123 — 1302 — — 1.749.850,00
1938 — 85 — 3707 — 1524 — — 2.021.788.00
1939 — 85 — 5374 — 1698 — — 2.414.710.00
1940 — 80 — 5255 — 1651 — — 2.739.580,00
1941 — 86 — 5610 — 1849 — — 3.605.350,00
1942 — 83 — 5815 — 1873 — — 4.669.030,00
1943 — 83 — 7049 — 1926 — — 8.810.425,00
1944 — 79 — 5950 — 1983 — — 10.053.537,00
1945 — 75 — 6015 — 1800 — — 10.218.650,00