Blik 1939, 5. tbl./Blik

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1939


Loftur Guðmundsson, kennari:


Blik.
Æska og blik . . . Þessi björtu orð
slá bjarma inn í hvers manns sál.
Þau hljóma eins og vorsvana vængjatök.
Þau verma eins og tendrað bál.
Æskan, — með blikandi bros í augum,
bjart, eins og sólroðað stál.


Æska með draumblik í sál og sinni
og seiðandi, djarfar þrár.
Æska með leifturblik ótamdrar orku
og órættar framtíðarspár.
Þér ögrar til víðfeðmra vængjataka
vorhiminn draumablár.


Æska, sem horfir með haukfránum augum
að hafsbrúnar yztu rönd,
og sérð, hvar í heillandi hyllingafirð
rís heiðljóma vafin strönd.
Við blik frá nýkveiktum bálum dagsins
þar birtast þín óskalönd.


Æska, það hlutverk er heilagt og stórt,
sem vor heimur þér leggur í skaut.
Að skapa úr arfi frá feigri fortíð
framtíð, á vorgeislabraut.
Að lyfta þar fána frelsis og dyggða,
sem föllnu hetjurnar þraut.