Björn Jakobsson (Hálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Björn Jakobsson og Steinunn Jónsdóttir.

Björn Jakobsson verkamaður, bóndi, sjómaður, netagerðarmaður, húsasmiður, póstur fæddist 29. ágúst 1893 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal og lést 2. febrúar 1974.
Foreldrar hans voru Jakob Björnsson bóndi, tómthúsmaður, f. 14. ágúst 1864 í Holti í Mýrdal, drukknaði 26. maí 1910 í útróðri frá Vík, og kona hans Guðríður Pétursdóttir húsfreyja, f. 14. júní 1863 á Vatnsskarðshólum, d. 12. nóvember 1923 í Reykjavík.

Björn var með foreldrum sínum á Vatnsskarðshólum í Mýrdal til 1894, hjá þeim í Fjósum þar 1894-1896, í Stóra-Dal þar 1896-1897, í Breiðuhlíð þar 1897-1907.
Hann var vinnumaður á Felli þar 1907-1916.
Þau Steinunn giftu sig 1915, fluttust að Miðeyjarhólma í A-Landeyjum og bjuggu þar 1916-1919.
Þau fluttust til Eyja 1919, leigðu í Hlíð með tvö börn á því ári, voru komin á Minni-Núp við Brekastíg 1920 og voru þar enn 1923, en farin þaðan 1924, leigðu í Skálholti við Landagötu 22 1927, á Kirkjuhól 1930 og enn 1940, en voru komin að Hálsi 1945 og bjuggu þar síðan meðan báðum entist líf. Steinunn lést 1968.
Björn bjó á Hálsi fram að Gosi, fluttist á Selfoss og bjó þar síðast, lést 1974.

I. Kona Björns, (13. nóvember 1915), var Steinunn Jónsdóttir húsfreyja frá Syðri-Rotum u. V-Eyjafjöllum, f. 28. júní 1884, d. 22. mars 1968.
Börn þeirra:
1. Sveinn Alexander Björnsson sjómaður, f. 14. júlí 1916, drukknaði af v.b. Gottu fyrir Norðurlandi 16. september 1936.
2. Jakobína Björnsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1918, d. 21. september 1946.
3. Andvana barn, f. 7. mars 1919.
4. Sveinbarn f. 7. mars 1919, d. sama dag.
5. Guðrún Sigríður Björnsdóttir húsfreyja á Hálsi, f. 7. febrúar 1920 á Minna-Núpi, d. 8. október 2011.
6. Sæmundur Kári Björnsson, f. 6. janúar 1921 á Minna-Núpi, d. 21. júlí 1923.
7. Guðríður Sigurbjörg Björnsdóttir, f. 12. desember 1921 á Minni-Núpi, d. 25. desember 1922.
8. Sigurleif Ólafía Björnsdóttir húsfreyja, f. 7. september 1923 á Minna-Núpi, d. 26. nóvember 1956.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.