Birkir Huginsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Birkir Huginsson fæddist 12. mars 1964 í Vestmannaeyjum og lést 7. apríl 1997. Foreldrar hans eru Albína Elísa Óskarsdóttir og Huginn Sveinbjörnsson, málarameistari. Sambýliskona Birkis um tíma var Þóra Guðný Sigurðardóttir og með henni eignaðist hann dótturina Elísu.

Birkir vann við húsamálun um tíma, auk þess að vera hljóðfæraleikari og hafði hann tónlist að atvinnu um tíma. Hann spilaði í mörgum hljómsveitum. Árið 1985 stofnaði hann ásamt fleirum hljómsveitina 7-und sem spilaði út um allt land hverja helgi í fjögur ár.

Birkir greindist ungur með MS-sjúkdóminn sem dró hann að lokum til dauða.


Heimildir

  • Morgunblaðið. Minningargreinar um Birki Huginsson.