Bergþóra G. Jónsdóttir (Dal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bergþóra Guðleif Jónsdóttir.

Bergþóra Guðleif Jónsdóttir frá Dal, húsfreyja, verslunarmaður fæddist þar 23. mars 1921 og lést 25. júní 2005 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Jón Guðnason járnsmiður, útgerðarmaður, síðar söðlasmiður á Selfossi, f. 13. júní 1889, d. 8. febrúar 1972, og kona hans Ingibjörg Bergsteinsdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1879, d. 2. september 1968.

Börn Ingibjargar og Jóns Guðnasonar:
1. Ragnheiður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 30. október 1917, d. 22. mars 2004, kona Vigfúsar Ólafssonar skólastjóra.
2. Bergþóra Guðleif Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1921, d. 25. júní 2005. Maður hennar var Björn Svanbergsson framkvæmdastjóri í Reykjavík.

Börn Ingibjargar og Magnúsar Þórðarsonar:
3. Bergþóra Magnúsdóttir verslunarkona, f. 4. apríl 1905, d. 19. október 1925 á Vífilsstöðum.
4. Kristján Magnússon málarameistari, f. 24. febrúar 1909, d. 16. nóvember 1979, kvæntur Júlíönu Kristmannsdóttur Þorkelssonar húsfreyju.
5. Steinunn Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1912, d. 24. júní 1960, gift Böðvari Jónssyni Sverrissonar í Háagarði.
6. Magnea Lovísa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 12. ágúst 1914, d. 22. júní 1991, gift Oddi Sigurðssyni skipstjóra.

Bergþóra var með foreldrum sínum skamma stund, en þau skildu 1924. Hún var með móður sinni í Dal 1927 og enn 1934, var starfsmaður á Sjúkrahúsinu 1940.
Hún flutti úr bænum, vann verslunarstörf.
Þau Björn giftu sig 1948, eignuðust eitt barn, bjuggu síðast í Hjálmholti 9 í Reykjavík.
Björn lést 1977 og Bergþóra Guðleif 2005.

I. Maður Bergþóru Guðleifar, (11. september 1948), var Björn Svanbergsson frá Grænumýrartungu í Hrútafirði, framkvæmdastjóri, f. 13. mars 1921, d. 23. október 1977. Foreldrar hans voru Svanbergur Jóhann Þórðarson bóndi, f. 23. september 1887, d. 7. júní 1923, og Margrét Björnsdóttir húsfreyja, f. 25. október 1892, d. 26. desember 1924.
Barn þeirra:
1. Hrafnkell Björnsson skrifstofumaður í Reykjavík, f. 30. október 1948. Kona hans Dagbjört Aðalsteinsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.