Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 101-110

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bls. 101



skyldualdurs, skólaganga án sjerstaks skólagjalds ef rúm leyfði.

Fram kom beiðni frá Sigfúsi Scheving í Heiðarhrauni þess efnis að leyft væri húsnæði í skólanum fyrir sjómannanámskeið, sem hann ætlaði sjer að starfrækja.

Kom nefndin sjer saman um að leyfa húsrúm í skólanum í þessu augnamiði.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason
Páll Bjarnason Gunnar Ólafsson


Árið 1923, fimmtudaginn 22. nóvember, var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru allir mættir, nema Halldór læknir Gunnlaugsson, sem síðar mætti á fundinn. Skólastjóri Páll Bjarnason var viðstaddur á fundinum.

Aðaltilefni fundarins var brjef frá bæjarfógetanum i Vestmannaeyjum dags. 20. þ. m., út af samþykkt bæjarstjórnarinnar á alm. fundi 9. þ. m., þar sem bæjarstjórnin, í tilefni af brjefi frá stjórn sýslubókasafnsins 7. þ. m., mælir með því við skólanefndina, að sýslubókasafninu verði ætlað til afnota í bili, eitthvert af herbergjum þeim í barnaskólahúsinu, sem nú eru ekki notuð.

Nefndin kom sjer saman um, að lána vestustu stofuna í kjallara barnaskólahússins til afnota fyrir sýslubókasafnið í bili, eða með því skilyrði, að safnið yrði tekið þaðan, hvenær sem krafist verður og sem búist er við, að verði strax á næsta hausti.
Í sambandi við það sem nú hefur verið tekið fram, leggur skólanefndin það til, samkv. tillögu frá hjeraðslækni og sótthreinsunarmanni:

1. að safnið verði hreinsað og þurrkað áður en það verður flutt í umrætt herbergi.
2. að brennt verði þeim bókum safnsins sem álíst vera rusl að dómi bókasafns-stjórnarinnar.
3. að lítt fræðandi bækur að dómi sömu manna, verði seldar á uppboði, eptir að sótthreinsun á þeim er lokið.
Minnst var á þrjá ofna, sem skólanefndin hafði umráð yfir, og fól skólanefndin formanni sínum ráðstöfun


Bls. 102



þeirra samkv. því sem talaðist til á fundinum.

Skólastjóri minntist á stöfunarpróf í skólanum, likt því og áður hefði tíðkast og áleit skólanefndin sjálfsagt að þeim prófum yrði haldið áfram og að skólastjóri rjeði tilhögun þeirra og tilkynningu um þau til barnaeigenda.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason Gunnar Ólafsson
Oddg. Guðmundsson Halldór Gunnlaugsson Páll Bjarnason


Árið 1923, sunnudaginn 25. nóvember var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Allir skólanefndarmenn, nema sra Oddgeir Guðmundsson, mættu á fundinum og auk þess skólastjóri Páll Bjarnason.
Tilefni fundarins var skrifleg kæra til skólanefndarinnar frá Gísla Magnússyni útvegsbónda í Skálholti út af barsmíð og illri meðferð, líkamlega, á syni Gísla, Óskari, í byrjun kennslustundar 23. þ. m. af völdum eins barnaskólakennarans Sigurbjörns Sveinssonar. Kærubrjefið dags. 24. þ. m.
Skólanefndin tók mál þetta til rækilegrar íhugunar, og varð sammála um það, að fela formanni nefndarinnar að senda hinum kærða kennara, Sigurbirni Sveinssyni, brjeflega alvarlega áminningu þar sem þetta framferði hans sje átalið, og honum fyllilega gert það skiljanlegt, að slíkt framferði sem það, er kæran ræðir um, muni ekki verða látið viðgangast optar, sjerstaklega þar sem það er kunnugt, að svipuð framkoma við börn í skólanum og sú er hjer um ræðir, muni áður hafa átt sjer stað af völdum sama kennara. Ennfremur að kennari þessi sje áminntur um, að rækja svo starfa sinn, sem kennari; að viðunandi megi teljast.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason
Halldór Gunnlaugsson Gunnar Ólafsson Páll Bjarnason


Bls. 103



Árið 1923, föstudaginn 14. desember var að Ásgarði haldinn skólanefndarfundur. Allir skólanefndarmenn mættu á fundinum nema Gunnar Ólafsson kaupm.
Tilefni fundarins var brjef frá Sigurbirni Sveinssyni, kennara við barnaskólann hjer, dags. 28. nóv. þ. á. til skólanefndarinnar í Vestmannaeyjum, svolátandi:
„Með því að svo gífurleg ósannindi eru borin fram í kæru hr. Gísla Magnússonar viðvíkjandi framkomu minni við Óskar, son hans, þá leyfi jeg mjer að mælast til þess, að hin háttvirta skólanefnd haldi fund, ásamt mjer og skólastjóra, sem allra fyrst, svo að mjer gefist þar kostur á, að leiða sannleikann í ljós í þessu máli.“
Kæra sú, sem hjer er átt við, er sú hin sama, sem skólanefndin á fundi sínum 25. f. m. hafði til meðferðar, og sem gaf tilefni til að skólanefndin varð sammála um, að kennari sá, sem hjer á hlut að máli, yrði fyrir alvarlegri áminningu á þá leið, sem fyrr nefnd fundargerð ber með sjer. Samkvæmt því, sem nú hefur verið tekið fram, kallaði skólanefndin á fund með sjer þá skólastjóra Pál Bjarnason, Sigurbjörn Sveinsson, kennara og útvegsbónda

Gísla Magnússon í Skálholti hjer. Formaður skólanefndarinnar las upp brjefin frá báðum aðiljum, þeim Gísla Magnússyni og Sigurbirni Sveinssyni. Því næst var kennaranum Sigurbirni Sveinssyni veitt málfrelsi á fundinum, og honum leyft að bera fram vörn í máli þessu, sem hann gerði með langri ræðu, og mótmælti hann öllum atriðum í kæru Gísla Magnússonar, nema því atriði að hann hafi slegið höndum drengsins ofan í púltið. Því næst var skólastjóra leyft að skýra málið, og gaf hann þá skýringu, meðal annars, að hann hefði komið að kennaranum þar sem hann, Sigurbjörn kennari, hjelt um handlegg barnsins, og var þá töluvert undið upp á úlnliðinn. Hinsvegar tók Gísli Magnússon það fram, að hann tæki ekkert af því aptur, sem í kærunni frá sjer stæði. Lagði hann fram tvö vottorð frá þeim Guðjóni Jónssyni á Oddsstöðum og Sigurði Björnssyni í Pálshúsi, þar sem þeir lýsa óánægju sinni yfir framkomu


Bls. 105



sama kennara við börn þeirra.

Sigurbjörn Sveinsson lagði fram vottorð, sem formaður las upp, frá þeim Ágústi Árnasyni, Bjarna Bjarnasyni, Eiríki Hjálmarssyni og Hallgrími Jónassyni, kennurum og Oddgeiri Guðmundssyni sókarpresti, sem öll fara í þá átt, að kennarinn hafi komið vel fram við börnin.

Það varð að sátt milli málsparta, að orðin í brjefi Sigurbjarnar kennara Sveinssonar til skólanefndarinnar; „gífurleg ósannindi“ skyldu burtu falla, og að skólastjóra sé falið að ákveða hvar piltur sá, Óskar, sem hjer um ræðir, skuli settur í skólanum. Skildu svo málspartar sáttir.

Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason Páll Bjarnason
Halldór Gunnlaugsson G. Magnússon Oddgeir Guðmundsson Sigurbjörn Sveinsson


Árið 1924, þriðjudaginn 10. júní, var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru þeir mættir: Árni Filippusson formaður nefndarinnar og meðnefndarmennirnir þeir Halldór læknir Gunnlaugsson og Jes. A. Gíslason, en fjarverandi utanhjeraðs voru þeir Gunnar Ólafsson kaupm. og Hallgrímur Jónasson kennari. Á fund þennan voru auk þess kvaddir þeir bæjarstjóri Kristinn Ólafsson, Páll Bjarnason skólastjóri og Magnús Ísleifsson trjesmiður, og voru þeir allir mættir.

Var þar og þá tekið fyrir:

1. Að ræða um núverandi hitunartæki í barnaskólanum, sem vitanlega hafa reynst mjög illa, að dómi þeirra, sem til þeirra tækja þekkja, og sem skólastjóri lýsti svo, að þau væru ófullnægjandi til að hita upp skólann, auk þess sem þau iðulega hefðu spilt svo andrúmsloptinu í skólanum, að ekki mætti skaðlaust teljast fyrir nemendurna. Í sama streng tók trjesmiður Magnús Ísleifsson, sem kunnugur er tækjum þessum. Komu fundarmenn sjer saman um að við svo búið mætti ekki lengur standa og að nauðsyn


Bls. 106



bæri til að ráða hið fyrsta bót á þessu ef auðið væri.
Eitt tilboð hafði nefndinni borist um hitunartæki frá Jóni Þorlákssyni & Norðmann í Reykjavík, að upphæð kr. 10.000,00 ef tekið væri fyrir 15. júní þ. á., en í því tilboði var fráskilin „öll vinna við borun á götum fyrir pípur og múrverk ef nokkuð skyldi vera“ Fundurinn sá sjer ekki fært, án frekari upplýsingar, að taka þessu tilboði, en samþykkti aptur á móti svolátandi tillögu, sem berast skyldi undir bæjarstjórn Vestmannaeyja:

að útvega og láta setja upp ný hitunartæki í barnaskólahúsið fyrir næsta kennslutímabil, sem væru í miðstöðvarhitunar-formi;
að til þess að ná í slík tæki væri reynt fyrir sjer um viðbótarlán út á skólahúsið og
að þeim bæjarstjóra og skólastjóra í sameiningu væri gefin heimild til að útvega lánið og fá tilboð á viðunandi hitunartækjum.

2. Lagði skólastjóri fram kennslu- og prófskýrslu fyrir árið 1923-1924 ásamt heilbrigðisvottorði fyrir Unglingaskóla Vestmannaeyja. 19 nemendur höfðu notið kennslu í skólanum. Kennarar skólans voru 3 að tölu. Skólanum var sagt upp 8. janúar 1924. Skólastjóri lýsi því yfir, að árangur kennslunnar hefði verið góður og að sjálfsagt væri að halda samskonar kennslu áfram. Skólanefndin kom sjer saman um, að reikna unglingaskólanum fyrir húsnæði, ljós og hita yfir kennslutímabilið kr. 360.00 eða 120 kr. á mánuði. Ennfremur samþykkti nefndin að greiða skólastjóra Páli Bjarnasyni fyrir umsjón og stjórn skólans kr: 120.00 eða 40 kr. um hvern mánuð.
3. Lagði skólastjóri fram kennslu- og prófskýrslur barnaskólans fyrir kennslutímabilið 1923/24 undirskrifaðar af prófdómurum og skólastjóra, og voru þær athugaðar af nefndinni.
Einnig var lagt fram prófdómaravottorð.
4. Var lagt fram erindi frá Hallgrími kennara Jónassyni dags. 16. maí þ. á., þar sem hann


Bls. 108



stingur upp á ýmsum umbótum skólanum viðkomandi, svo sem leikfimiskennslu, þvotta-áhöldum, hitunartæki og endurbót á leikvelli og lóð skólans.

Nefndin hafði bæði á þessum fundi og fyrr haft ýms þessi atriði til umræðu og tekið fullnaðarákvörðun um sum t. d. hitunartækin og ætlað sjer að koma öðrum í framkvæmd svo fljótt sem auðið væri; en tekur það sjerstaklega fram, að hún sjá sjer ekki, að svo stöddu fært, að taka nokkra ákvörðun um leikfimiskennsluna.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason Páll Bjarnason
Kristinn Ólafsson Magnús Ísleifsson Halldór Gunnlaugsson


Árið 1924, þriðjudaginn 23. september var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði kl. 2. e h. Allir hinir kosnu nefndarmenn mættu og auk þeirra skólastjóri Páll Bjarnason.

Var þar og þá tekið fyrir:

Lögð fram stundaskrá fyrir tilkomandi skólaár (1923-24) barnaskólans, sem sýndi 207 kennslustundir á viku hverri; var hún athuguð og samþykkt án breytinga.
Formaður skólanefndarinnar lagði fram frumvarp til áætlunar um tekjur og gjöld barnskólans á árinu 1925, sem gerir ráð fyrir að þess árs gjöld til skólans muni nema 25.000 kr., og að sú upphæð verði að greiðast að öllu úr bæjarsjóði, þar sem ekki eru áætlaðar neinar aðrar tekjur. Frumvarp þetta var samþykkt á fundinum og formanninum falið að afgreiða það til bæjarstjórnarinnar.

(Áætlunin innfærð í þessa bók bls. 112)
Tekið var til umræðu leikfimismálið og voru allir nefndarmennirnir sammála um nauðsyn leikfimiskennslu fyrir skólann. Nefndin beindi þeim tilmælum sínum til nefndar þeirrar, sem kosin var 27. sept. f. á., að halda áfram starfi því um undirbúning leikfimishúss-byggingar,sem þeirri nefnd var falið á fyrr nefndum fundi. Þá samþykkti nefndin að láta rannsaka hvaða börn í skólanum þyrfti helst að verða aðnjótandi sjúkraleikfimis, og fól hjeraðslækni að útvega, ef auðið væri, þeim börnum leikfimiskennara. Nefndin gekk út frá því, að kennsla þessi hlyti að hafa einhver aukin útgjöld í för með sjer.
Þá var minnst á tannskemmdir skólabarna. Og afréð nefndin, ef hjer settist að tannlæknir,


Bls. 109




í bænum, að sá læknir yrði ráðinn fyrir einhverja smá þóknun til að skoða skólabörnin við og við, gefa þeim ráð til að vernda tennurnar frá frekari skemmdum og til að verja óskemmdar tennur skemmdum, og jafnframt, ef skólabörn þyrftu að láta gera við skemmdar tennur, að þau kæmust að einhverri ívílnun hjá hinum ráðna tannlækni skólans. Nefndin fól formanni sínum í samráði við hjeraðslækni, að semja við lækni þann, sem hjer um ræðir, ef til kæmi.

Þá var rætt um Unglingaskóla Vestmannaeyja. Um ráðning kennara við þann skóla varð nefndin sammála um, að ráða Sigurð Einarsson stud. theol.sem kennara fyrir 300 kr. um mánuðinn. Hafði hann með umsókn dags. 20. sept. þ. á. sótt um þann starfa. Að öðru leyti varð nefndin sammála um það, að leita fyrir sjer hjá ráðnum kennurum skólans um kennslu í unglingaskólanum, og var formanni skólanefndar í samráði við skólastjóra falin sú ráðning.
Fleira ekki gert. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason Páll Bjarnason
H. Gunnlaugsson Hallg. Jónasson
Gunnar Ólafsson


Árið 1924 mánudaginn 13. október kl. 8 e. h. var að Ásgarði haldinn skólanefndarfundur. Allir nefndarmennirnir mættu á fundinum og auk þess Páll skólastjóri Bjarnason.

Var þar og þá tekið fyrir:
Skólastjóri skýrði frá því að tala barna á skólaskyldualdri sem bætst hefðu við á þessu ári væri yfir 70 að tölu og af þeim væri fullur helmingur, sem, sökum vankunnáttu væru ekki tæk í skólann, væru stautandi, en ekki meira. Kvað skólastjóri ekki önnur ráð til þess að bæta úr þessu, en að skipta einum bekk, taka þau frá, sem skemst á veg væru komin, og mynda þannig nýjan bekk, sem nyti fræðslu með tímakennslu. Væri þetta aukakostnaður fyrir skólann og þess vegna hefði hann ekki upp sitt einsdæmi viljað fara þessa leiðina, en vildi eða yrði að hafa samþykki skólanefndarinnar til þessa aukakostnaðar við skólahaldið.


Bls. 110




Nefndin sá enga aðra leið færa, til að bæta úr þessum vandkvæðum, en þá sem skólastjóri hafði lagt til að farin yrði: myndun nýs bekks með tímakennslu, og kom nefndin sjer saman um, að varið yrði til þessara aukakennslu allt að 500 krónum. Nefndin tók það fram, að ef fært sæist að ná inn einhverju af þessu gjaldi, þá áliti hún að hæfilegt væri að ákveða gjaldið ekki minna en 5 kr. á mánuði hverjum fyrir hvert barn.

Formaður skólanefndar leitaði álits nefndarinnar um það, hvað gjalda ætti í kaup tímakennurum við Unglingaskólann. Nefndin áleit að ekki væri úr hófi að greiða að þessu sinni 2 kr. 50 um tímann.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Árni Filippusson J. A. Gíslason Páll Bjarnason
H. Gunnlaugsson Hallgr. Jónasson Gunnar Ólafsson


Árið 1925, þriðjudaginn 31. marz kl. 5 e. h. var að Ásgarði haldinn skólanefndarfundur. Allir skólanefndarmennirnir voru mættir.

Auk þess var viðstaddur á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason.

Efni fundarins: að kjósa formann og ritara og var stungið upp á formanni Árna Filippussyni og skrifara Jes. A. Gíslasyni og hlutu þeir báðir kosningu.
Formaður bar það undir nefndina hvað borga ætti um tímann þeim kennurum, sem í vetur hefðu tekið að sjer aukakennslu í skólanum og samþykkti nefndin að greiða þeim 2kr. 50 aura um tímann.
Skólastjóri fór fram á það við nefndina að honum væri leigt til íbúðar herbergi eitt í skólanum, sem losnað hefði úr íbúð er Sigurbjörn Sveinsson flutti úr skólanum. Nefndin varð ásátt um að leigja skólastjóra hið umbeðna herbergi og kom sjer saman um að ákveða leiguna 15 krónur um mánuð hvern.
































inum skólastjóri Páll Bjarnason.

  Sra Sigurjón Árnason tilkynnti nefndinni það að presturinn sra Halldór Kolbeins í Flatey vildi gefa kost á sjer sem kennari við unglingaskólann hjer næstkomandi vetur og vildi hann leita álits skólanefndarinnar um það tilboð og beiddist ákveðins svars nefndarinnar svo  hann gæti nú þegar tilkynnt sra Halldóri úrslit nefndarinnar.  Eptir nokkrar umræður varð nefndin sammála um það að ráða sra Halldór Kolbeins ef fengist, sem aðalkennara við unglingaskólann hjer næsta vetur fyrir 300 króna kaup um mánuð hvern.  Auk þess skyldi sra Halldóri gefinn kostur á einnar stundar kennslu á dag í barnaskólanum hjer fyrir 2 kr.50a um tímann.  Þó verði starfinn við báða skólana, sem fyr um getur, ekki borgaður minna samtals en 1500 krónur.
  Nefndin tók til íhugunar ástand nokkra vanræktra barna hjer hvað uppeldi og kennslu þeirra áhrærði.  Var sjerstaklega í því sambandi bent á börn hjónanna í Sandgerði hjer og barnanna í Hruna.  Var sóknarprestinum sjerstaklega falið að orðfæra það við bæjarstjóra, hve nauðsyn sje á því, að gera ráðstafanir til þess, að börnin í Hruna sjeu þaðan tekin og send á sína sveit, með því að það sje vitanlegt að þau verði þar fyrir hinu mesta ræktarleysi, þar sem þau sjeu undir hendi mjög drykkfellds kvenmanns, sem á engan hátt geti sjeð þeim farborða.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason J. A. Gíslason

P. V. G. Kolka Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason













Árið 1925, þriðjudaginn 16. júní kl. 8 e. h. var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyjabæjar í barnaskóla bæjarins. Allir nefndarmenn mættu og auk þess var á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason. Var þar og þá tekið fyrir:

1. Lagður fram reikningur barnaskólans fyrir almanaksárið (1924) og reikningur unglingaskólans fyrir skólaárið 1924/1925. Reikninga þessa las formaður skólanefndarinnar upp á fundinum. Ennfremur voru lagðar fram prófskýrslur og kennsluskýrslur barnaskólans og unglingaskólans og voru þær athugaðar af nefndinni. Fyrir sitt leyti hafði skólanefndin ekkert að athuga við reikningana og fól formanni sínum að afhenda þá til bæjarstjórnar.

   Einn nefndarmanna P. V. G. Kolka læknir vakti athygli á því, að komið gæti til mála að breyta láni því sem á skólanum hvíldi í veðdeildarlán.

2. Nefndin tók til umræðu leikfimishúsbyggingu austan við skólahúsið. Var nefndin sammála um það, að bráða nauðsynlegt væri, að leikfimishús yrði reist hið fyrsta.

Svolátandi tillaga kom fram og var samþykkt: Skólanefndin skorar á bæjarstjórnina, að annast um að hið fyrirhugaða leikfimishús verði reist og fullgert fyrir næsta kennslutímabil.

Þá tók nefndin til athugunar og umræðu ágang þann á skólalóðina, sem bersynilegur er samkv. hinum nýja skipulagsuppdrætti bæjarins. Skólanefndin mótmælir því einnig, að reist verði nokkurt hús eða lagðir nokkrir vegir nokkursstaðar á hinni afmörkuðu lóð skólans, nema ræða sje um hús og vegi í þarfir skólans, því að nefndin álítur að ekki megi á nokkurn hátt skerða þá lóð, og mannvirki, sem nú fylgi skólanum, en bersýnilegt sje, að hinn nýi uppdráttur stefni að því.

  Nefndin átti langar umræður um ýms vanrækt börn, aga og uppeldislaus hjer í bænum, sem þörf væri á að bjarga, ef þess væri kostur.  Voru tilnefnd heimili svo sem Sandgerði og Hruni, sem reyndar hafa áður verið til umræðu í nefndinni.  Nefndin ályktaði að fela formanni nefndarinnar að skrifa bæjarfógetanum og leita aðstoðar hans í því að fá uppleyst heimilið í Hruna, sem algerlega óhæfilegan verustað fyrir börn, og að börnin sem þar eru tvö verði flutt í burtu á sína sveit hið fyrsta.
  Skólanefndarmaðurinn sra Sigurjón Árnason tilkynnti nefndinni, að sra Halldór Kolbeins væri orðin afhuga því að takast á hendur hjer, næsta kennslutímabil, kennslu þá í unglingaskólanum, sem nefndin á fundi sínum 28. apríl þ. á. hafði ákveðið að veita honum, ef hann gæfi kost á sjer til þess starfa.  Út af því fól nefndin skólastjóra, Páli Bjarnasyni, að leita fyrir sjer um kennara við unglingaskólann í Reykjavíkur-ferð þeirri sem fyrir honum lægi.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason J. A. Gíslason

P. V. G. Kolka Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason


Árið 1925, sunnudaginn 12. júlí var að Ásgarði haldinn skólanefndarfundur. Allir nefndarmenn mættu nema P. V. G. Kolka læknir, sem var í Reykjavíkurferð.

Fundurinn var settur kl. 6 e. h. og var þar og þá tekið fyrir:
  Lagt fram brjef dags. 9. júlí þ. á. frá Þorgeiri Jónssyni cand, theol. þar sem hann sækir um kennarastöðu við Unglingaskóla Vestmannaeyja næstkomandi vetur 1925/ 26.
  Nefndin var sammála um það að veita umsækjandanum Þorgeiri Jónssyni kennarastöðu þá við Unglingaskóla Vestmannaeyja, veturinn 1925/26, með sömu eða líkum launakjörum og fyrirrennari hans, Sigurður Einarsson stud. theol hafði starfað fyrir síðastliðið skólaár og fól formanni sínum að tilkynna hlutaðeigandi umsækjanda þessa ályktun skólanefndarinnar hið fyrsta.

Fleira ekki gert. Fundi slitið.

Árni Filippusson J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason Hallgr. Jónasson
















Árið 1925, þriðjudaginn 29. september var að Ásgarði haldinn skólanefndarfundur. Allir nefndarmenn mættu. Auk nefndarmanna var viðstaddur á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason.

Var þar og þá tekið fyrir:

  Lagt fram brjef frá fræðslumálastjóra, dags. 22. sept. þ. á. þar sem hann tilkynnir skólanefndinni að Unglingaskóla Vestmannaeyja hafi af Stjórnarráðinu verið veittur 800 kr. kennslustyrkur fyrir síðastliðinn vetur.
  Lögð fram stundaskrá barnaskólans í Vestmannaeyjum fyrir skólaárið 1925-26, sem gerir ráð fyrir 223 kennslustundum á viku fyrir hina 10 deildir barnaskólans og kemur þá í ljós að 25 stundum er óráðstafað, sem ef til vill mætti sameina svo að þær yrðu ekki fleiri en 18.  
  Nefndin ræddi talsvert um kennslu þeirra barna hjer, sem ekki eru á skólaskyldualdri, og sem reynst hafa mjög skammt á veg komin, að því er lestrarkunnáttu snertir, svo að jafnvel til vandræða horfði.  Voru nefndarmenn sammála um að reyna að bæta úr þessari vöntun eptir því sem hægt væri.  En að svo stöddu sá nefndin sjer ekki fært að taka nokkra endilega ákvörðun um þetta atriði, en leita fyrir sjer um kennara, sem á einhvern hátt nytu aðstoðar skólanefndar t. d. að því er húsnæði snerti, og að kennsla þessara manna yrði undir eptirliti skólanefndar.
  Skólastjóri minntist á það, að nokkur væru þau börn í skólanum, sem óhafandi væru með skólabörnum, sökum ýmsra annmarka: óknytta, óhlýðni, gáfnatregðu o.s.frv.  Gat hann þess ef slík börn yrðu tekin í skólann, mundu kennararnir áskilja sjer rjett til að mega vísa þeim á bug ef ekki yrði hægt að aga þau og typta líkt og önnur börn á líku þroskastigi.  Var formanni skólanefndarinnar falið að leita fyrir sjer um mann er taka vildi að sjer til kennslu börn þau er hjer um ræðir.

Rætt var um kaup fyrir væntanlega aukakennslu bæði í barnaskólanum og unglingaskólanum og kom nefndinni saman um, að ákveða kaupið hið sama og í fyrra: 2.50 um tímann.

Fleira ekki gert. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason J. A. Gíslason

Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason P. V. G. Kolka