Axel Halldórsson (kaupmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Axel Halldórsson , Anna Erlendsdóttir, Anna Gunnlaugsson og Anna Dóra Axelsdóttir

Axel Halldórsson fæddist í Vestmannaeyjum 11. júní 1911 og lést 31. maí 1990. Hann var sonur Halldórs Gunnlaugssonar læknis og Önnu Gunnlaugsson sem var fædd og uppalin í Danmörku. Árið 1936 kvæntist Axel Sigurbjörgu Magnúsdóttur, dóttur Magnúsar á Sólvangi. Börn þeirra voru Anna Dóra, Gunnlaugur, Kristrún, Hildur, Magnús og Halldór.

Árið sem Axel fermdist drukknaði faðir hans. Móðir hans setti þá á laggirnar verslun í Vestmannaeyjum sem hún rak lengi. Árið 1928 fór Axel til verslunarnáms í Danmörku og lauk þar námi 1932. Að námi loknu kom hann heim og hóf störf í verslun móður sinnar en stofnaði árið 1938 heildverslunina Óðin og seldi fiskiskip, veiðarfæri og fleiri vörutegundir. Þetta fyrirtæki rak Axel í Vestmannaeyjum í meira en þrjá áratugi.

Axel var á yngri árum virkur í félagslífi í Vestmannaeyjum, var t.d. meðal stofnfélaga Golfklúbbs Vestmannaeyja, starfaði í Íþróttafélaginu Þór, Skátafélaginu Faxa, Karlakór Vestmannaeyja og Oddfellow.

Innan við fimmtugt varð Axel sjúkdómi að bráð sem síðan hrjáði hann það sem hann átti ólifað, Parkinson-veiki. Í hans tilfelli fór sjúkdómurinn hægt en sífellt versnandi og hann sagði stundum í gamni að hann mundi eiga met í langlífi með þennan sjúkdóm. Vissulega voru veikindi hans þó ekkert gamanmál; þau gerðu hann óvinnufæran, í rauninni löngu áður en hann hætti störfum og bökuðu honum bæði þjáningar og margs konar erfiðleika.

Myndir


Heimildir

  • Vésteinn Ólason. Morgunblaðið, 12. júní 1990. Minningargrein um Axel Halldórsson.

Frekari umfjöllun

Axel og Sigurbjörg.

Axel Valdemar Halldórsson frá Kirkjuhvoli, stórkaupmaður fæddist þar 22. september 1911 og lést 31. maí 1990.
Foreldrar hans voru Halldór Gunnlaugsson héraðslæknir, f. 25. ágúst 1875 á Skeggjastöðum í Fellum í N.-Múl., drukknaði 16. desember 1924, og kona hans Anna Sigrid Gunnlaugsson, fædd Therp 16. febrúar 1885 í Danmörku, d. 22. ágúst 1963.

Börn Önnu og Halldórs:
1. Ólafur Þorsteinn Halldórsson læknir, f. 4. desember 1906 í Langa-Hvammi, d. 20. febrúar 1997.
2. Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson arkitekt, f. 6. ágúst 1909 í Langa-Hvammi, d. 13. febrúar 1986.
3. Axel Valdemar Halldórsson stórkaupmaður, f. 22. september 1911 á Kirkjuhvoli, d. 31. maí 1990.
4. Ella Vilhelmína Halldórsdóttir verslunarmaður, kaupmaður, f. 2. ágúst 1914 á Kirkjuhvoli, d. 21. ágúst 2005.
Fóstursonur hjónanna var systursonur Halldórs
5. Gunnar Þórir Þorláksson húsasmíðameistari í Reykjavík f. 10. júní 1919 í Garðhúsum, d. 27. apríl 1987.

Axel var með foreldrum sínum til þrettán ára aldurs, en þá drukknaði faðir hans við Eiðið.
Hann nam verslunarfræði í Danmörku 1928 og lauk prófi 1932.
Axel vann við verslun móður sinnar, sem hún hafði stofnað eftir lát manns síns, en hann stofnaði og rak einnig búsáhaldaverslunina Úrval við Miðstræti. Árið 1938 stofnaði hann heildverslunina Óðin og seldi m. a. fiskiskip, Völundvélar og veiðarfæri. Hann rak fyrirtækið í Eyjum til Goss, en síðan í Reykjavík meðan heilsa hans leyfði.
Þau Sigurbjörg giftu sig 1936, eignuðust sex börn, en misstu eitt þeirra 15 ára gamalt. Þau byggðu húsið við Kirkjuveg 67 eftir teikningu Gunnlaugs bróður Axels og bjuggu þar til Goss.
Axel lést 1990 og Sigurbjörg 2000.

I. Kona Valdemars Axels, (10. september 1936), var Sigurbjörg Magnúsdóttir frá Sólvangi, húsfreyja, f. 19. september 1916 á Túnsbergi, d. 1. júní 2000.
Börn þeirra:
1. Anna Dóra Axelsdóttir, f. 12. ágúst 1937, d. 3. janúar 1953.
2. Gunnlaugur Jón Ólafur Axelsson framkvæmdastjóri, f. 31. maí 1940, d. 16. október 2006. Kona hans Fríða Dóra Jóhannsdóttir.
3. Hildur Axelsdóttir húsfreyja, f. 12. febrúar 1944. Maður hennar Kristján Finnsson
4. Kristrún Axelsdóttir húsfreyja, bankafulltrúi, f. 12. febrúar 1944. Maður hennar Sigmar Pálmason.
5. Magnús Ólafur Helgi Axelsson kennari, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 8. júní 1948. Kona hans Guðrún Árný Arnarsdóttir.
6. Halldór Gunnlaugsson Axelsson framkvæmdastjóri, f. 29. ágúst 1952. Kona hans Anna Sólveig Óskarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Morgunblaðið 12. júní 1990. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.