Auður Eiríksdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Auður Eiríksdóttir fæddist að Borgum í Þistilfirði í Norður-Þingeyjarsýslu 20. september 1902 og lézt í Reykjavík 8. júlí 1979.

Auður Eiríksdóttir


Ætt og uppruni

Faðir hennar var Eiríkur bóndi og smiður í Brekknakoti, Borgum, Kollavík, síðar á Höskuldarnesi, en síðast á Grasgeira á Melrakkasléttu, f. 14. (k.bók 11.) júlí 1871, d. 9. ágúst 1921, Kristjánsson bónda á Bægisstöðum í Þistilfirði Eiríkssonar og konu Kristjáns, Aðalbjargar Bjarnadóttur. Kristján afi Auðar tók á móti börnum. Móðir Auðar var Þorbjörg húsfreyja, f. 11. sept. 1870, d. 14. apríl 1949, Guðmundsdóttir bónda í Klifshaga í Axarfirði Þorvaldssonar og konu Guðmundar, Kristínar Bjarnadóttur Bucks, Nikulássonar Bucks.

Lífsferill

Auður lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 25. júní 1925. Hún stundaði framhaldsnám við Fæðingarstofnun Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn 5. ágúst 1931-14. maí 1932. Sumarið 1934 var hún á námskeiði um meðferð og eftirlit ungbarna á Klinik Dr. J. P. Jensen í Kaupmannahöfn.
Hún var ljósmóðir í Raufarhafnarumdæmi 16. júlí 1925-1930; á Landspítalanum 30. maí 1932-1. nóvember 1933; í Eyraumdæmi í Patreksfirði 1. nóv. 1933-maí 1934. Þá var hún ljósmóðir í Eyjum 1. nóvember 1934-30. okt. 1945. Frá 1946 vann hún við afleysingar í Reykjavík og var starfandi ljósmóðir þar.

Auður og Karl

Maki (24. okt. 1936): Karl húsasmíðameistari í Eyjum og síðar í Reykjavík, f. 3. maí 1911 í Haga í Aðaldælahreppi í S-Þingeyjarsýslu, d. 27. desember 1994, Jakobsson bónda í Haga, Þorgrímssonar og Rannveigar Jónasdóttur.

Börn þeirra Karls:

  1. Þráinn byggingaverkfræðingur í Reykjavík, f. í Eyjum 9. júní 1938, kvæntur Birnu Magnúsdóttur handavinnukennara, f. 16. des. 1935.
  2. Örlygur þjóðfélagsfræðingur og framhaldsskólakennari, skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 2. maí 1945 í Eyjum, kvæntur Steingerði Jónsdóttur skólaritara, f. 10. apríl 1945.

Heimildir

  • Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Auður Eiríksdóttir: „Þorbjörg Guðmundsdóttir frá Klifshaga“ í bókinni Móðir mín húsfreyjan. Reykjavík: Skuggsjá, 1977. Bls 95-114.
  • Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
  • Legstaðaskrá.
  • Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík. Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: 1946. I. Bls.150.
  • Verkfræðingatal. Reykjavík: Þjóðsaga, 1996.
  • Þráinn Karlsson, viðtal.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.