Anna Sigrid Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja fæddist 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi við Kirkjuveg 41 og lést 20. apríl 1991.
Foreldrar hennar voru Magnús Þórðarson bóndi, kaupmaður, útgerðarmaður, verkamaður, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og sambúðarkona hans Margrét Bjarnadóttir húsfreyja, f. 10. desember 1869 í Ásólfsskála u. Eyjafjöllum, d. 2. október 1950.

Börn Margrétar og Magnúsar voru:
1. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, fórst 29. janúar 1940.
2. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
3. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Margrétar og Jónasar Jónssonar á Múla voru:
4. Jón Jónasson útgerðarmaður í Ásnesi, fiskimatsmaður, f. 8. ágúst 1895 í Berjanesi u. Eyjafjöllum, d. 23. apríl 1970.
5. Kristján Jónasson sjómaður, vélstjóri f. 28. júlí 1902 í Stakkagerði, d. 14. júlí 1976.
6. Karl Gunnar Jónasson loftskeytamaður, f. 28. febrúar 1905 á Múla, d. 25. júlí 1934.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
15. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
16. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
17. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Magnúsar og Gíslínu Jónsdóttur voru:
10. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
11. Stúlka, f. 15. janúar 1919 í Langa-Hvammi, lést nokkurra daga gömul.
12. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
13. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
14. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
15. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
16. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
17. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
18. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
19. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 6. mars 2021.
20. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 4. janúar 2014.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Anna var með móður sinni í Langa-Hvammi 1920.
Hún fór snemma til Reykjavíkur, giftist Marteini og eignaðist tvö börn með honum. Þau skildu og Anna sneri til Eyja með börnin.
Þau Sigurður giftu sig 1944, eignuðust tvö börn og önnuðust börn Önnu frá fyrra hjónabandi hennar. Þau bjuggu á Lágafelli við Vestmannabraut 10, í Landakoti við Strandveg 51, en við Birkihlíð 26 við Gos, en að síðust á Litlalandi við Kirkjuveg 59.
Anna lést 1991 og Sigurður 1998.

I. Fyrri maður Önnu, (skildu 1940), var Marteinn Pétursson bifreiðastjóri, verkamaður í Reykjavík, f. 30. september 1904, d. 10. nóvember 1971. Foreldrar hans voru Pétur Lúðvík Marteinsson verkamaður, f. 3. desember 1873, d. 10. október 1962, og kona hans Kristín Sigmundsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1868, d. 24. desember 1963.
Börn þeirra:
1. Pétur Lúðvík Marteinsson flugmaður, síðast í Hafnarfirði, f. 24. nóvember 1932 í Reykjavík, d. 19. maí 2018. Kona hans Áslaug Árnadóttir.
2. Karl Gunnar Marteinsson vélvirki, kennari í Eyjum, f. 21. desember 1936, d. 15. desember 2014. Kona hans Svandís Unnur Sigurðardóttir.

II. Síðari maður Önnu, (23. júní 1944), var Sigurður Gissurarson frá Byggðarholti í Flóa, sjómaður, f. 21. nóvember 1918, d. 4. apríl 1998.
Börn þeirra:
1. Þórarinn Sigurður Sigurðsson rafvirki, f. 14. desember 1945 á Lágafelli. Kona hans Guðrún Rannveig Jóhannsdóttir.
2. Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, f. 10. apríl 1947 á Lágafelli. Maður hennar Sigurður Sigurðsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.