Anna Daníelsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Anna Daníelsdóttir húsfreyja fæddist 30. september 1856 á Kirkjubæ og lést 8. febrúar 1837 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Daníel Magnússon bóndi á Kirkjubæ, f. 1818, d. 15. desember 1869, og kona hans Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. desember 1830, d. 23. maí 1879.

Anna var með foreldrum sínum á Kirkjubæ nýfædd. Hún var eina barn þeirra, sem lifði frumbernskuna.
Þau fluttust frá Kirkjubæ að Þorlaugargerði 1857 og bjuggu þar meðan faðir hennar lifði.
1870 varð móðir hennar vinnukona í Jómsborg og Anna niðursetningur, 1972 og 1873 var hún þar með móður sinni.
Hún var „léttakind“ í Fagurlyst 1874, „léttakind“ í Vanangri 1875, vinnukona í Jómsborg með móður sinni 1876-1878, er hún fluttist til lands með henni, sögð fara að Álfhólum í V-Landeyjum. Hún var vinnukona í Ormskoti u. Eyjafjöllum 1880.
Anna var á Saurbæ á Kjalarnesi við fæðingu Sigurðar 1884, var vinnukona í Tjarnarkoti á Reykjanesi 1890, lausakona í Reykjavík 1901, húsfreyja í Reykjavík 1910 og stundaði þjónustu og ýmsa vinnu 1920, var á Bjargarstíg 3 í Reykjavík 1930.
Hún dvaldi að síðustu á Elliheimilinu Grund í Reykjavík.

I. Barnsfaðir Önnu var Þorlákur Ólafsson Johnson rithöfundur , verslunarmaður, kaupmaður í Reykjavík, f. 31. ágúst 1838 á Breiðabólstað á Skógarströnd, d.25. júní 1917. Foreldrar hans voru Ólafur Einarsson Johnsen prestur, prófastur, f. 8. janúar 1809 í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi, d. 28. maí 1885, og kona hans Sigríður Þorláksdóttir húsfreyja, f. 23. maí 1816 í Kjalarnesþingum, d. 26. maí 1875.
Barn þeirra:
1. Sigurður Þorláksson Heiðdal fyrsti forstöðumaður á Litla-Hrauni á Eyrarbakka, rithöfundur, skólastjóri í Reykjavík, f. 16. júlí 1884 í Saurbæ á Kjalarnesi og alinn þar upp, d. 17. febrúar 1972. Kona hans Jóhanna Sigríður Jörgensdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.