Þorgerður Vilhjálmsdóttir (Múla)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Vilhjálmur og Guðbjörg með börnum sínum. Sigurður Ingi situr á milli hjónanna.

Þorgerður Vilhjálmsdóttir húsfreyja á Múla fæddist 12. ágúst 1903 á Oddsstöðum og lést 29. september 1990.
Foreldrar hennar voru Vilhjálmur Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður á Múla, f. 28. ágúst 1872 í Rofabæ í Meðallandi, d. 3. júlí 1951, og kona hans Guðbjörg Árnadóttir húsfreyja, f. 27. september 1869 á Fossi í Mýrdal, d. 10. júlí 1929.

Börn Vilhjálms og Guðbjargar voru:
1. Ólafur Vilhjálmsson skipstjóri, sjómaður, f. 12. september 1900, d. 24. febrúar 1972.
2. Þorgerður Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 12. ágúst 1903, d. 29. september 1990.
3. Kjartan Leifur Vilhjálmsson skipstjóri, sjómaður, f. 20. mars 1906, drukknaði 30. mars 1932.
4. Guðlaug Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. maí 1907, d. 22. júlí 1974.
Fóstursonur þeirra var
5. Sigurður Ingi Jónsson prentari í Reykjavík, f. 19. júní 1917, d. 30. október 1997.

Þorgerður var með foreldrum sínum á Oddsstöðum 1903, en síðan á Múla. Það hús byggðu þeir faðir hennar og Jónas Jónsson 1904. Þar bjó hún með foreldrum sínum og var þar síðan húsfreyja.
Þau Steinn bjuggu þar nýgift með foreldrum hennar 1924 og við fæðingu Sigríðar 1925. Um stutt skeið bjuggu þau á Gunnarshólma, en voru aftur á Múla við fæðingu Jónu 1928 og bjuggu þar síðan.
Þau eignuðusr 4 dætur.

Maður Þorgerðar, (10. maí 1924), var Steinn Ingvarsson bóndi, verkamaður, síðar framfærslufulltrúi, f. 23. október 1892, d. 1. mars 1983.
Börn þeirra:
1. Sigríður Steinsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1925. Maður hennar var Sveinn Hróbjartur Magnússon sjómaður, smiður, lögreglumaður, handavinnukennari, f. 22. júlí 1921, d. 26. september 2008.
2. Jóna Guðbjörg Steinsdóttir, f. 6. júní 1928, d. 30. janúar 2019. Maður hennar er Hilmar Guðlaugsson múrari, f. 2. desember 1930, d. 30. janúar 2019.
3. Guðbjörg Þóra Steinsdóttir, f. 20. mars 1931. Maður hennar var Finnbogi Árnason rafvirkjameistari, f. 5. maí 1930.
4. Guðrún Steinsdóttir, f. 22. september 1935, d. 7. október 2017. Maður hennar er Jóhann Guðmundur Ólafsson sjómaður, verkstjóri, f. 15. apríl 1935.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.