Þorbjörg Sveinsdóttir (Klöpp)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorbjörg Sveinsdóttir húsfreyja u. Eyjafjöllum, vinnukona í Nýborg og Klöpp fæddist 25. júlí 1829 í Eyvindarhólasókn u. Fjöllunum og lést 17. mars 1894 í Klöpp.
Foreldrar hennar voru Sveinn Jónsson bóndi í Neðri-Dal og á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, f. 11. apríl 1801, d. 25. júní 1879, og kona hans Þórunn Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. apríl 1797. Þórunn var dóttir Þorbjargar Jónsdóttur Natanaelssonar.

Bróðir Þorbjargar var Sigurður Sveinsson í Nýborg.
Systur föður þeirra, Sveins í Neðri-Dal, voru:
1. Anna Jónsdóttir í Jónshúsi, móðir Gísla Stefánssonar.
2. Guðbjörg Jónsdóttir vinnukonu í Dölum
Hálfsystir þeirra, samfeðra, var
3. Guðríður Jónsdóttir húsfreyja í Dölum og Norðurgarði.

Þorbjörg var með foreldrum sínum í Neðri-Dal 1835, á Rauðafelli 1840, var fósturbarn í Syðstu-Mörk 1845.
Hún var gift kona Sigurðar vinnumanns hjá Sigurði Sigurðssyni bónda föður hans á Rauðafelli 1850 og 1855, húsfreyja á Raufarfelli ytra 1860 með Sigurði og barninu Þórunni 4 ára.
Sigurður maður hennar lést 1866 og hún giftist Einari 1869. Þau fluttust að Steinum 1871 með Sigurð 6 ára, Sigurbjörgu börn Þorbjargar og Jón son sinn 1 árs. Þorbjörg var vinnukona í Núpakoti 1880 og þar var Jón Einarsson 9 ára niðursetningur, líklega sonur hennar.
1890 var Þorbjörg komin að Nýborg og var vinnukona þar hjá Sigurði bróður sínum. Þar var hún enn 1891, en hún lést 1894 hjá Sigurbjörgu dóttur sinni í Klöpp.

I. Fyrri maður Þorbjargar, (29. september 1848), var Sigurður Sigurðsson bóndi, f. 12. júlí 1822, d. 28. maí 1866. Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson bóndi á Rauðafelli og kona hans Sesselja Ásgeirsdóttir húsfreyja.
Börn þeirra hér:
1. Þórunn Sigurðardóttir, f. 26. nóvember 1850, d. 30. nóvember 1850.
2. Andvana drengur, f. 28. nóvember 1851.
3. Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 1. maí 1853, d. 3. maí 1860.
4. Halldóra Sigurðardóttir, f. 16. mars 1855, d. 14. apríl 1860.
5. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja í Reynisholti í Mýrdal, f. 4. ágúst, f. 1856, d. 9. mars 1951.
6. Sveinn Sigurðsson, f. 13. desember 1858, d. 14 maí 1859.
7. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Klöpp, f. 3. maí 1861, d. 10. mars 1931.
8. Jón Sigurðsson, f. 28. nóvember 1862, d. 11. desember 1862.
9. Sigurður Sigurðsson smiður í Akurey, f. 25. janúar 1865, d. 8. desember 1914.

II. Síðari maður Þorbjargar, (8. október 1869, skildu), var Einar Híerónýmusson bóndi, síðar verkamaður á Felli, f. 11. október 1849, d. 6. apríl 1922. Foreldrar hans voru Híerónýmus Jónsson bóndi og Kristín Einarsdóttir kona hans.
Börn þeirra hér:
10. Anna Kristín Einarsdóttir, f. 23. júlí 1868, d. 9. ágúst 1868.
11. Jón Einarsson, f. 16. maí 1870, líklega niðursetningur í Núpakoti 1880.
12. Anna Einarsdóttir í Skála, húsfreyja, f. 26. apríl 1872, d. 6. febrúar 1939.
13. Kristín Einarsdóttir, f. 24. apríl 1874, d. 27. apríl 1874.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.