Örlygur Helgi Grímsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Örlygur Helgi Grímsson er fæddur 16. júní 1981. Hann er sonur Gríms Magnússonar og Maríu Ármannsdóttur. Kona Örlygs er Kolbrún Stella Karlsdóttir og sonur þeirra er Karl Jóhann.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Örlygur Helgi skipað sér sess sem einn af betri kylfingum landsins. Árið 2005 náði Örlygur góðum árangri á stigamóti Golfsambands Íslands og varð klúbbmeistari Golfklúbbs Vestmannaeyja. Á sumrin hefur Örlygur starfað sem vallarstjóri golfvallarins í Vestmannaeyjum.

Örlygur Helgi var valinn íþróttamaður Vestmannaeyja árið 2005.