Ólafur Jónsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Jónsson bóndi í Stóra-Rimakoti í Holtum, síðast vinnumaður á Búastöðum, fæddist 25. nóvember 1797 og lést 21. maí 1859.
Foreldrar hans voru Jón Bjarnason vinnumaður í Holtum og Halldóra Jónsdóttir, síðar húsfreyja í Unhól þar, f. 1775.

Ólafur var hálfbróðir, sammæddur, Oddnýjar Þórðardóttur húsfreyju á Vilborgarstöðum.

Ólafur og Guðrún voru vinnufólk í Háfshóli í Holtum 1835, bændur í Stóra-Rimakoti í Holtum 1837-1854, reyndar skráð húsfólk þar síðustu árin.
Guðrún lést 1855.
Ólafur fluttist úr Háfssókn að Þorlaugargerði 1857, ekkill, var vinnumaður þar á því ári, en á Búastöðum 1858-dd. 1859.

I. Kona Ólafs, (1. júlí 1834), var Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1783, d. 12. maí 1855.
Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III –Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.