Ólafur Guðmundsson (Hilmisgötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ólafur Guðmundsson.

Ólafur Guðmundsson frá Hilmisgötu 1, málarameistari, tónlistarmaður fæddist þar 11. maí 1934 og lést 24. pktóber 2020 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson frá Miðkekki (síðar Svanavatn) á Stokkseyri, skósmiður, f. 23. apríl 1899, d. 16. janúar 1989, og kona hans Jóhanna Ólafsdóttir frá Hólnum, húsfreyja, f. 26. júlí 1895 á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, d. 27. júlí 1984.

Börn Jóhönnu og Guðmundar:
1. Marinó Guðmundsson loftskeytamaður, innkaupastjóri í Reykjavík, tónlistarmaður, f. 28. nóvember 1927 á Hólnum, d. 27. janúar 2006.
2. Björgvin Einars Guðmundsson málari, f. 9. nóvember 1929 á Karlsbergi, síðast í Keflavík, d. 31. ágúst 2005.
3. Andvana drengur, f. 9. nóvember 1930 á Karlsbergi.
4. Ólafur Guðmundsson málarameistari, tónlistarmaður, f. 11. maí 1934 á Hilmisgötu 1.
Fóstursonur þeirra er sonur Marinós og Birnu Einarsdóttur.
5. Jóhann Marinósson hjúkrunarframkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi, f. 23. júlí 1947. Kona hans er Halldóra Jensdóttir.

Ólafur var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Selfoss 1945.
Hann nam málaraiðn hjá Carli Gränz málarameistara við Kaupfélag Árnesinga, lauk sveinsprófi 1958 og fékk meistarabréf 1963.
Ólafur stundaði sérhæft framhaldsnám tengt oðrun og marmaramálun í Kaupmannahöfn og framhaldsnám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík.
Þau Ágústa Jóhanna giftu sig 1964, eignuðust tvö börn, bjuggu í Kópavogi.
Ágústa Jóhanna lést 2017.

I. Kona Ólafs, (7. ágúst 1964), var Ágústa Jóhanna Hafberg húsfreyja í Kópavogi, starfsmaður Pósts og síma og Alþýðubankans, síðar Íslandsbanka, f. 14. apríl 1937, d. 8. janúar 2017 á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Foreldrar hennar voru Friðrik Hafberg frá Hafnarfirði, kafari þar, f. 13. janúar 1893 í Ráðagerðiskoti á Álftanesi, d. 2. ágúst 1966, og kona hans Vilborg Ágústa Þorvaldsdóttir Hafberg húsfreyja frá Vífilsmýri í Önundarfirði, f. 7. ágúst 1897, d. 18. janúar 1998.
Börn þeirra:
1. Vilberg Friðrik Ólafsson málarameistari í Danmörku, f. 4. apríl 1967. Sambúðarkona hans Gitte Haman.
2. Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir, Kirkjulundi í Garðabæ, málarameistari, kennari við Fjölbrautarskólann í Kópavogi, f. 17. apríl 1968. Maður hennar er Hjalti Guðbjörn Karlsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.