Óðinn Steinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Óðinn Steinsson.

Óðinn Steinsson rekstrarfræðingur, þjónustustjóri fæddist 25. október 1973.
Foreldrar hans: Stein (Bró) Ingolf Henriksen vélstjóri, f. 10. janúar 1942, og kona hans Mary Kristín Coiner húsfreyja, verkakona, f. 5. júlí 1943, d. 4. júní 2019.

Börn Mary Kristínar og Stein Ingolfs (Bróa):
1. Ágúst Vilhelm Steinsson sjómaður, Kirkjuvegi 43, f. 1. október 1962. Kona hans var Klara Tryggvadóttir, f. 14. september 1961. Þau skildu. Síðari kona hans er Arna Ágústsdóttir.
2. Engilbert Ómar Steinsson stýrimaður, gistihússrekandi, umboðsmaður bifreiðaverslunar BL, f. 3. desember 1965. Kona hans er Arndís María Kjartansdóttir.
3. Óðinn Steinsson rekstrarfræðingur, fyrrum þjónustustjóri, nemi í umhverfis- og auðlindafræði í Kanada, f. 25. október 1973. Kona hans er Steinunn Jónatansdóttir.

Óðinn var með foreldrum sínum í æsku, bjó með þeim í London, Miðstræti 3 til Goss 1973, í Njarðvík rúmt ár, flutti með þeim til Eyja og bjó með þeim á Ármótum í eitt ár, nokkra mánuði á Hásteinsvegi 56, eitt ár á Brimhólabraut 34. Þau bjuggu í íbúð sinni á Dverghamri 39 frá 1976 og lengi, þá á Túngötu 73.
Óðinn nam rekstrarfræði, var þjónustustjóri Íslandsbanka. Hann og Steinunn voru kennarar og hún skólastjóri við Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi 2012-2013.
Óðinn nemur nú umhverfis- og auðlindafræði í Kanada og ver meistararitgerð sína „Perceptions of Visitors to the Muskwa-Kechika Management Area, British Columbia“ - við University of Northern British Columbia í Kanada 4. september 2019.
Þau Steinunn giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Brekkugötu 17 og síðar á Áshamri 52.

I. Kona Óðins er Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, fyrrum hjúkrunarforstjóri f. 20. september 1973.
Börn þeirra:
1. Rúnar Kristinn Óðinsson, f. 27. ágúst 1996.
2. Brynjar Ingi Óðinsson, f. 19 nóvember 1999.
3. Jónatan Árni Óðinsson, f. 20. mars 2005.


Heimildir

  • Google.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Stein Bró.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.