Þorvarður Ingvarsson (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorvarður Ingvarsson sjómaður í Ólafshúsum fæddist 29. júní 1906 og lést 31. janúar 1942.
For.: Ingvar Karelsson í Hvíld, Árnessýslu, f. 1865, d. 1908 og k.h. Diðrika Jónsdóttir, f. 1872, d. 1960. Ingvar var bróðir Jóhönnu Karelsdóttur móður Kristínar Óladóttur á Þingeyri, fyrri konu Sigurjóns Sigurðssonar, en Kristín var hálfsystir Ólafíu Óladóttur (Lóu í Stíghúsi).

Kona Þorvarðar var Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1910, d. 6. mars 1993. Þorvarður var fyrri maður Elínar. Síðari maður Elínar var Þórður Sveinsson í Engidal.
Börn Þorvarðar og Elínar:
1. Jórunn Erla Þorvarðardóttir húsfreyja, matartæknir í Reykjavík, f. 2. nóvember 1929. Maður hennar Óskar Þorvarðarson húsgagnasmíðameistari.
2. Ríkharður Ingvi Þorvarðarson, dó kornabarn.
3. Hilmir Þorvarðarson, f. 26. september 1934, d. 7. desember 1919..


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson.
  • Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson.
  • Mbl. 1993.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.