Þórdís Guðmundsdóttir (London)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Guðmundsdóttir frá London, bústýra fæddist 7. september 1870 í London og lést 26. maí 1949.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Erlendsson formaður og lóðs í London, f. 27. júní 1839 á Borgareyrum u. Eyjafjöllum, d. 20. júní 1875, og kona hans Una Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. apríl 1939 í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð, d. 25. apríl 1930.

Börn Unu og Guðmundar í London voru:
1. Þorsteinn Guðmundsson sjómaður, f. 10. ágúst 1864, fórst með þilskipinu Jósefínu í apríl 1888.
2. Helgi Guðmundsson, f. 18. maí 1866, d. 10. júní 1866, „dó úr uppdráttarveiki barna“.
3. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinum, f. 19. desember 1867, d. 26. febrúar 1924.
4. Þórdís Guðmundsdóttir bústýra, vinnukona, f. 7. september 1870, d. 26. maí 1949.
5. Helga Guðmundsdóttir, f. 19. mars 1873. Hún var þvottahúsrekandi í Kaupmannahöfn. Var á lífi 1948. Hún kostaði listnám Nínu Sæmundsson (Jónínu Sæmundsdóttur), en þær voru systkinabörn. Una og Sæmundur voru systkini.
6. Herdís Magnúsína Guðmundsdóttir húsfreyja í London, f. 29. júlí 1874, d. 19. september 1944.

Hálfsystir Þórdísar, barn Unu og Ólafs Magnússonar var
7. Elsa Dóróthea Ólafsdóttir húsfreyja á Velli, f. 27. júlí 1879, d. 27. september 1956.
Stjúpsystkini Þórdísar, börn Ólafs frá fyrra hjónabandi hans, voru:
1. Árni Ólafsson, f. 18. júní 1857.
2. Oddný Ólafsdóttir húsfreyja á Vestdalseyri í Seyðisfirði, f. 6. ágúst 1859, d. 23. maí 1928.
3. Dóróthea Ólafsdóttir kaupkona á Brimnesi í Seyðisfirði, f. 1861, d. 13. júlí 1894.
4. Ólafur Ólafsson vinnumaður í London, f. 15. mars 1869, d. 22. febrúar 1899.
5. Hallvarður Ólafsson sjómaður, fór til Vesturheims frá London 1909, f. 27. mars 1872, d. 29. maí 1914.
Fóstursystir þeirra var
6. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 14. janúar 1889, d. 22. nóvember 1948.

Faðir Þórdísar lést 1875, er hún var 5 ára. Hún var send í fóstur til Helga móðurbróður síns og Arnfríðar Erlendsdóttur að Heylæk í Fljótshlíð á sama ári. Á Heylæk ólst hún upp, var þar vinnukona hjá Guðrúnu Helgadóttur frænku sinni 1890.
Hún eignaðist Unu Guðmundsdóttur 1892, var bústýra Jóns Jónssonar í Sauðhústúni í Fljótshlíð 1901, vinnukona á Heylæk 1910, ráðskona á Heylæk 1920, fluttist til Reykjavíkur 1927.
Þórdís leigði með Unu dóttur sinni á Vesturgötu 33 í Reykjavík 1930. Hún lést 1949.

Barnsfaðir Þórdísar var Guðmundur Guðmundsson vinnumaður á Valstrýtu.
Barn þeirra var
1. Una Guðmundsdóttir saumakona, f. 22. október 1892, d. 18. mars 1974. Hún var með móður sinni í Sauðhústúni 1901, hjú á Vestri-Sámsstöðum 1910, fluttist til Reykjavíkur 1922, var saumakona þar 1930, bjó síðast á Hrafnistu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.