Þóra Jónsdóttir (Dalbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Dalbæ fæddist 17. júní 1868 í Presthúsum Mýrdal og lést 11. mars 1965, jarðs. í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Jón Ögmundsson bóndi í Presthúsum í Mýrdal, f. 8. júlí 1840 í Reynisholti í Mýrdal, á lífi 1901, og kona Jóns Rannveig húsfreyja í Presthúsum í Mýrdal, f. 1829, d. 7. mars 1876, Björnsdóttir.

Þóra var með foreldrum sínum til ársins 1876. Eftir lát móður sinnar fóru Þóra og systkini hennar að Görðum í Mýrdal til móðursystur þeirra Guðrúnar Björnsdóttur og manns hennar Hallgríms Einarssonar og voru fóstruð þar. Þau fluttust síðan með þeim til Suðurnesja. Þóra fluttist frá Flankastöðum á Miðnesi 1881 til föður síns í Eyjum.
Hún var vinnukona í Stakkagerði 1890.
Þau Helgi giftust 1894 á Seyðisfirði og bjuggu þar til árssins 1900, er þau fluttust til Eyja með tvö eldri börn sín.
Þóra var húsfreyja í Dalbæ 1901 og framvegis, en var ekkja þar hjá Jónínu Guðnýju dóttur sinni frá 1824.
Hún var síðan hjá Jónínu Guðnýju dóttur sinni, fyrst á Stokkseyri, síðan á Selfossi og dvaldi þar framvegis. Hún lést 1965 og var jarðsett í Eyjum.

Maður Þóru, (1894) var Helgi Guðmundsson útgerðarmaður og formaður í Dalbæ, f. 9. júlí 1870, d. 11. mars 1924.
Börn Þóru og Helga voru:
1. Guðjón, fæddur 6. nóvember 1894 á Vestdalseyri í Seyðisfirði, dáinn í janúar 1919.
2. Rannveig, fædd 3. febrúar 1898 á Vestdalseyri í Seyðisfirði, dáin 22. apríl 1956, gift Óskari Bjarnasen háskólaverði, f. 21. mars 1899, d. 22. september 1957.
3. Margrét Helgadóttir, fædd 10. október 1902 í Eyjum, dáin 16. júní 1916.
4. Jónína, fædd 27. janúar 1909 í Eyjum, dáin 25. september 1999, síðast á Selfossi, gift Guðmundi Ketilssyni, f. 13. maí 1902, d. 21. ágúst 1981.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Morgunblaðið 16. júní 1963. Afmælisgrein. Sveinbjörn Einarsson.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Garður.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.