Þórður Brynjólfsson (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórður Brynjólfsson í Norðurgarði fæddist 16. júní 1862. Faðir hans var Brynjólfur bóndi í Norðurgarði, f. 11. nóvember 1824, d. 4. júní 1874, Halldórsson bónda í Skíðbakkahjáleigu og Kúfhóli í A-Landeyjum, f. 5. desember 1793 í Miðkoti í V-Landeyjum, d. 5. júní 1826 í Kúfhóli, Guðmundssonar bónda í Miðkoti, f. 1759, d. 21. júlí 1845, Einarssonar, og fyrri konu Guðmundar í Miðkoti, Marínar húsfreyju, f. 1765, d. 11. nóvember 1815, Halldórsdóttur.
Móðir Brynjólfs í Norðurgarði og fyrri kona (11. júlí 1818) Halldórs í Kúfhóli var Salvör húsfreyja í Skíðbakkahjáleigu og Kúfhóli, f. 10. ágúst 1795 í Skipagerði í V-Landeyjum, d. 5. ágúst 1839, Brynjólfsdóttir bónda í Skipagerði, f. 1734, d. 20. janúar 1803, Guðmundssonar, og síðari konu Brynjólfs, Sigríðar húsfreyju, f. 1761, d. 21. nóvember 1839, Ögmundsdóttur (Ásgarðsætt í Grímsnesi).

Móðir Þórðar í Norðurgarði og kona (1880) Brynjólfs var Jórunn húsfreyja, f. 4. desember 1828, d. 14. febrúar 1879, Guðmundsdóttir bónda í Norðurgarði, f. 17. október 1790, d. 18. ágúst 1846, Eyjólfssonar bónda í Búðarhóls-Austurhjáleigu (nú Hólavatn) í A-Landeyjum, f. 1768, d. 26. nóvember 1838, Guðmundssonar, og konu Eyjólfs, Elínar húsfreyju og yfirsetukonu, f. 1767 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 7. maí 1855, Ísleifsdóttur.
Móðir Jórunnar í Norðurgarði og kona Guðmundar var Guðrún húsfreyja, f. 1798, Jónsdóttir bónda á Brekkum í Hvolhreppi, f. 1762, d. 12. febrúar 1842, Þorbjörnssonar, og konu Jóns á Brekkum Vilborgar húsfreyju, f. 1763, d. 14. febrúar 1843, Jónsdóttur.

Systkini Þórðar hér:
1. Margrét Brynjólfsdóttir húsfreyja á Miðhúsum f. 20. október 1852, d. 25. október 1927.
2. Rannveig, húsfreyja, f. 27. september 1853, d. 5. október 1922, giftist Magnúsi Pálssyni í Reykjavík.
3. Magnús, f. 17. desember 1864. Hann fór til Vesturheims.
4. Salvör, f. 11. janúar 1866, d. 11. júlí 1900, húsfreyja í Reykjavík, giftist Ólafi Sveinssyni. Sonur þeirra var Kjartan Ólafsson, f. 17. september 1894, d. 3. ágúst 1960, yfirfiskimatsmaður í Húsavík, faðir Jóns verkalýðsforingja. Kjartan ólst upp hjá Margréti móðursystur sinni á Miðhúsum frá árinu 1898.
5. Guðbjörg, f. 2. apríl 1867, d. 25. apríl 1944. Hún var vinnukona á Akureyri 1890, síðar búsett í Reykjavík.
6. Halldór, sem varð blindur og kallaður Halldór blindi, f. 12. janúar 1873, d. 28. janúar 1948. Hann kvæntist Kristínu Vigfúsdóttur af Rangárvöllum, f. 2. september 1865, d. 5. janúar 1836. Þau bjuggu í Sjávargötu, síðar í Hafnarfirði.

Þórður var með foreldrum sínum til 1874, með ekkjunni móður sinni 1874-1878, vinnumaður á Vesturhúsum 1879 og 1880, á Búastöðum 1881-1882, fór á því ári til Reykjavíkur. Hann var líklega sá, sem fór til Vesturheims frá Akureyri 1887, trésmiður, 24 ára.

I. Barnsmóðir Þórðar var Ólöf Lárusdóttir, þá á Búastöðum, síðar húsfreyja á Kirkjubóli, f. 19. desember 1862, d. 16. nóvember 1944.
Barn þeirra var
Andvana drengur, f. 1. maí 1882.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun

Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.