Í Herjólfsdal (2004)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
2003 2004 2005
Um fagra jörð stígur rómantík í fagran dans
Nú þegar tjaldborg hefur verið reist á grænni grund
Lundi stendur vörð,og starir til andans
Meðan þú gleðst með góðum vinum á góðri stund
Ljúft andartak hér
Varðveitir leyndarmál með þér
Þegar tunglsljósið logar í hamrasal
Hver ein dýrmæt stund
Dregur með sér ástarfund
Ágústnótt í Herjólfsdal
Á Fjósaklett, bjarmi lýsir upp helgan reit
Sem vekur upp yl og hjartaþel
Og yfir þann blett, varðveitist minningin svo heit
Sem við þekkjum svo vel, þú og ég
Ljúft andartak hér
Varðveitir leyndarmál með þér
Þegar tunglsljósið logar í hamrasal
Hver ein dýrmæt stund
Dregur með sér ástarfund
Ágústnótt í Herjólfsdal
Heim úr dalnum hömrum gyrta
Hljóðlát leiðast sveinn og mey
Allar góðar vættir verndi
Og vaki yfir Heimaey
Sólo
Ljúft andartak hér
Varðveitir leyndarmál með þér
Þegar tunglsljósið logar í hamrasal
Hver ein dýrmæt stund
Dregur með sér ástarfund
Ágústnótt í Herjólfsdal


Lag: Helgi Tórshamar.
Texti: Helgi Tórshamar og Jórunn Emilsdóttir Tórshamar.