Ása Guðrún Jónsdóttir (Mörk)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ása Guðrún Jónsdóttir.

Ása Guðrún Jónsdóttir frá Mörk, húsfreyja fæddist 25. september 1922 á Skjaldbreið og lést 17. janúar 2010 á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Foreldrar hennar voru Jón Tómasson sjómaður, skipstjóri í Mörk, f. 3. desember 1896 í Arnartungu í Staðarsveit á Snæfellsnesi, d. 28. september 1953, og kona hans Steinunn Árnadóttir húsfreyja, f. 12. júlí 1892 í Stóra-Dal u. V.-Eyjafjöllum, d. 6. september 1971.

Börn Steinunnar og Jóns:
1. Trausti Jónsson, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994.
2. Ása Guðrún Jónsdóttir, f. 25. september 1922, d. 17. janúar 2010.
3. Margrét Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1924, d. 25. desember 1992.
4. Tryggvi Jónsson, f. 11. mars 1925, d. 28. júlí 2014.
5. Bragi Jónsson, f. 30. ágúst 1931, d. 11. mars 2004.
6. Tómas Jónsson, f. 13. janúar 1933, d. 6. ágúst 1947.
7. Andvana stúlka, f. 11. september 1936.

Ása Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, en farinn frá Mörk 1939.
Hún eignaðist barn með Wilhelm Guren 1943, en Jón faðir hennar tók barnið í fóstur.
Þau Stefán Kristvin eignuðust 7 börn. Þau bjuggu í Mörk, en síðar í Hólmgarði við Vestmannabraut 12.
Stefán Kristvin drukknaði 1965.
Ása Guðrún giftist Þórarni og bjó með honum í Mörk 1979. Þau skildu.
Ása Guðrún flutti til Reykjavíkur, en dvaldi síðast á Hrafnistu í Hafnarfirði og lést 2010.

I. Barnsfaðir Ásu Guðrúnar var Wilhelm Guren frá Noregi.
Barn þeirra:
1. Margrét Steinunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 31. október 1943 í Mörk. Maður hennar Arnar V. Ingólfsson.

II. Sambúðarmaður Ásu Guðrúnar var Stefán Kristvin Pálsson sjómaður, trillukarl, f. 26. september 1921, drukknaði 5. janúar 1965.
Börn þeirra:
2. Tómas Stefánsson húsasmiður í Kópavogi, f. 28. október 1947 í Mörk. Kona hans Steinunn Kristensen.
3. Gyða Stefánsdóttir skrifstofumaður í Reykjavík, f. 6. nóvember 1950 í Mörk. Hún er ógift.
4. Halldór Páll Stefánsson sjómaður, f. 11. nóvember 1948 á Fögruvöllum, drukknaði 1. apríl 1995. Hann var ókvæntur og barnlaus.
5. Halldóra Stefánsdóttir húsfreyja, skólaliði í Hafnarfirði, f. 18. nóvember 1951 í Mörk. Maður hennar Haukur Gunnarsson.
6. Jón Stefánsson sjómaður í Neskaupstað, f. 11. maí 1953 í Mörk. Fyrrum kona hans Ásta Sigrún Gylfadóttir.
7. Bryndís Stefánsdóttir fiskverkakona, f. 9. maí 1955 í Mörk, d. 22. maí 1977. Fyrrum maður hennar Gísli Erlingsson.
8. Sveinn Stefánsson húsasmiður, síðast í Hafnarfirði, f. 19. júní 1956 í Hólmgarði, d. 17. ágúst 2020. Kona hans Hulda Kristinsdóttir.

III. Maður Ásu Guðrúnar, skildu, var Steindór Þórarinn Grímsson bifreiðastjóra, f. 31. desember 1924, d. 28. maí 1997.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 25. september 2010. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.