Árni Valdason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Árni Valdason

Árni Valdason
Árni Valdason
Árni Valdason
Árni Valdason

Árni Valdason frá Sandgerði, (Árni Valda), fæddist 17. september 1905 í Ásólsskálasókn u. Eyjafjöllum og lést 26. júlí 1970.
Foreldrar hans voru Valdi Jónsson bóndi í Mið-Skála, síðar sjómaður í Sandgerði, f. 21. júní 1874, d. 21. ágúst 1947, og kona hans Guðrún Stefánsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1878, d. 14. febrúar 1954.

Börn Guðrúnar og Valda:
1. Eitt barn dáið fyrir 1910.
2. Kristján Þórarinn Valdason, f. 1. febrúar 1903, d. 16. desember 1924.
3. Árni Valdason, f. 17. september 1905, d. 26. júlí 1970.
4. Stefán Sigurþór Valdason, f. 17. mars 1908, d. 24. júlí 1982.
5. Kristný Jónína Valdadóttir, f. 10. október 1909, d. 10. ágúst 1993.
6. Óskar Valdason, tvíburi, f. 29. október 1912, d. 26. mars 1940.
7. Sigurjón Valdason, tvíburi, f. 29. október 1912, d. 13. maí 1984.
8. Guðbjörg Kristjana Halldóra Valdadóttir, f. 10. október 1914, d. 27. apríl 2007.
9. Jón Hafsteinn Valdason, f. 22. janúar 1920, d. 22. október 1920.
Barn Valda og Elínar Pétursdóttur:
10. Guðjón Pétur Valdason, f. 4. október 1893, d. 17. ágúst 1989.
Börn Valda og Halldóru Pálsdóttur:
11. Kristín Karítas Valdadóttir, f. 21. febrúar 1898, d. 20. september 1938.
12. Páll Valdason þjóðgarðsvörður, múrari, f. 14. júní 1900, d. 8. júní 2000.
Barn Valda og Sigurborgar Eyjólfsdóttur:
13. Lára Valdadóttir, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 28. október 1902 á Moldnúpi u. Eyjafjöllum, d. 19. nóvember 1989.

Árni var með foreldrum sínum í Mið-Skála 1910.
Hann fluttist með þeim frá Mið-Skála að Péturshúsi 1911, var kominn með þeim að Sandgerði 1912 og var með þeim þar, meðan þeirra naut við og bjó þar síðan.
Hann var sjómaður alla tíð.
Árni var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir

  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.