Árni Ólafsson (London)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Árni Ólafsson frá London fæddist 18. janúar 1857.
Foreldrar hans voru Ólafur Magnússon bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar í London, f. 18. júlí 1828, d. 21. mars 1904, og fyrri kona hans Elsa Dóróthea Árnadóttir húsfreyja, f. 29. september 1832, d. 21. september 1877.

Systkini Árna voru:
1. Oddný Ólafsdóttir húsfreyja á Vestdalseyri í Seyðisfirði, f. 6. ágúst 1859, d. 23. maí 1928.
2. Dagbjört Ólafsdóttir, f. 7. október 1860, d. 19. janúar 1878.
3. Dóróthea Ólafsdóttir kaupakona á Brimnesi í Seyðisfirði, f. 1861, d. 13. júlí 1894.
4. Magnús Ólafsson, f. 16. ágúst 1866, d. 19. janúar 1878.
5. Ólafur Ólafsson vinnumaður í London, f. 15. mars 1869, d. 22. febrúar 1899.
6. Halla Ólafsdóttir, f. 20. september 1870, d. 23. nóvember 1871.
7. Hallvarður Ólafsson sjómaður, fór til Vesturheims frá London 1909, f. 27. mars 1872, d. 29. maí 1914.
8. Halla Ólafsdóttir, tvíburi, f. 30. júní 1873, d. 10. júlí 1873.
9. Oddný Ólafsdóttir, tvíburi, f. 30. júní 1873, d. 8. október 1873.
Hálfsystir Ólafs, samfeðra, var
10. Elsa Dóróthea Ólafsdóttir húsfreyja á Velli, f. 27. júlí 1879, d. 27. september 1956, kona Lárusar Halldórssonar.

Árni var með foreldrum sínum í Berjanesi í æsku. Móðir hans lést 1877 og faðir hans fór með nokkur börn sín til Eyja 1878. Þar kvæntist hann Unu Guðmundsdóttur í London, en hún var þá nýlega orðin ekkja eftir Guðmund Erlendsson.
Árni var þar 1881, var vinnumaður í Jómsborg 1882 og enn 1885, er hann fluttist þaðan til Seyðisfjarðar.
Hann finnst ekki á skrá á Seyðisfirði, en Árni Ólafsson 25 ára kom að Asknesi í Mjóafirði 1885 og fluttist þaðan til Winnipeg 1887.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.