Ármann Guðmundsson (Viðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ármann Óskar Guðmundsson.

Ármann Óskar Guðmundsson frá Viðey, útgerðarmaður, bifreiðastjóri fæddist 28. maí 1913 á Ytri-Hóli í V-Landeyjum og lést 3. júlí 2002 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi.
Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson frá Bjólu bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943 í Eyjum, og kona hans Pálína Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, d. 6. mars 1963 í Reykjavík.

Börn Pálínu og Guðmundar:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
Börn Guðmundar Einarssonar og Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu, f. 11. desember 1891, d. 13. janúar 1957:
13. Aðalheiður Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 25. nóvember 1919, d. 5. ágúst 2008. Hún var ógift.
14. Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði, f. 16. september 1921, d. 22. desember 2007. Maður hennar var Ólafur Markús Guðjónsson stýrimaður.
15. Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1921, d. 17. apríl 1992.
Barn Guðmundar Einarssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur vinnukonu á Bjólu í Djúpárhreppi:
16. Helgi Guðmundsson bóndi í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 13. september 1902, d. 25. september 1932. Kona hans var Steinvör Jónsdóttir.
Uppeldisbróðir systkinanna, sonur Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu er
17. Ragnar Hafliðason málarameistari, kaupmaður, f. 12. nóvember 1928 í Viðey, d. 3. desember 2019.

Ármann var með foreldrum sínum í æsku, á Ytri-Hóli í V-Landeyjum, fluttist með þeim til Eyja 1921 og bjó hjá þeim í Viðey til fullorðinsára.
Þau Unnur Guðlaug giftu sig 1935, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra nær fjögurra mánaða gamalt. Þau bjuggu í Steinum, Urðavegi 8, en þar var áður Elínarhús.
Ármann var í útgerð um skeið, en lengst var hann vörubifreiðastjóri.
Við Gos fluttust þau í Mosfellsbæ og síðan að Hlégerði 17 í Kópavogi. Þau unnu um skeið á Reykjalundi.
Unnur lést í maí 2002 og Ármann í júlí.

I. Kona Ármanns, (21. desember 1935), var Unnur Guðlaug Eyjólfsdóttir húsfreyja frá Steinum, f. þar 4. janúar 1913, d. 10. maí 2002.
Börn þeirra:
1. Þórunn Helga Ármannsdóttir, f. 26. apríl 1937 í Steinum.
2. Guðmunda Pálína Ármannsdóttir, f. 22. desember 1940 í Steinum.
3. Jónína Guðrún Ármannsdóttir, f. 19. júní 1948 í Steinum, d. 30. janúar 2021.
4. Þorsteinn Óskar Ármannsson, f. 25. mars 1951, d. 16. júlí 1951.
5. Þorsteinn Óskar Ármannsson, f. 16. júlí 1954.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 12. júlí 2002. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.