Ágúst Helgason (Hamri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gunnar Ágúst Helgason.

Gunnar Ágúst Helgason á Lögbergi, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, forstöðumaður fæddist 22. janúar 1923 á Hamri og lést 23. nóvember 2000.
Foreldrar hans voru Helgi Hjálmarsson sjómaður, trésmiður á Hamri, síðar bóndi í Rotum u. Eyjafjöllum, f. 13. október 1880, d. 6. apríl 1976, og fyrri kona hans Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. desember 1889, d. 25. ágúst 1924.

Börn Helga og Guðbjargar voru:
1. Hermann Helgason vélstjóri, f. 30. janúar 1916 á Löndum, d. 5. júlí 2006. Kona hans var Sigurlaug Guðmundsdóttir.
2. Magnús Helgason, f. 5. júlí 1917 á Túnsbergi, síðast í Reykjavík, d. 3. janúar 1992.
3. Hjálmar Kristinn Helgason sjómaður í Reykjavík, f. 16. júní 1920 í Fagurhól, d. 22. nóvember 1993. Kona hans var Elín Katrín Sumarliðadóttir
3. Gunnar Ágúst Helgason á Lögbergi, sjómaður, vélstjóri, forstöðumaður, f. 22. janúar 1923 á Hamri, d. 23. nóvember 2000. Kona hans var Ingibjörg Lovísa Guðjónsdóttir.
4. Guðbjörg Helgadóttir Beck húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 18. ágúst 1924 á Hamri, d. 28. maí 2013. Maður hennar var Páll Beck.

Börn Helga og Sigríðar síðari konu hans og hálfsystkini Ágústs:
5. Sigurður Helgi Helgason verkamaður í Reykjavík, f. 3. apríl 1926, d. 17. maí 1991, ókvæntur.
6. Hlöðver Helgason í Eyjum, verkamaður, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, síðar í Reykjavík, f. 11. september 1927 á Hamri, d. 2. ágúst 2007. Kona hans var Katrín Sólveig Jónsdóttir.
7. Gústaf Helgason verkamaður í Reykjavík, f. 21. ágúst 1928, d. 21. febrúar 2010, ókv.
8. Hugó Helgason, f. 31. mars 1930. Hann fluttist til Svíþjóðar, ókvæntur.
9. Laufey Helgadóttir húsfreyja í Noregi, f. 28. maí 1932. Maður hennar er Kåre Gravdehaug.
10. Unnur Sigrún Helgadóttir húsfreyja í Noregi, f. 21. ágúst 1933. Maður hennar er Kjeld Gundersen.
11. Sigrún Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 11. júlí 1937, d. 18. júní 1987. Hún var gift Sæmundi Inga Sveinssyni bifreiðastjóra.

Ágúst missti móður sína, er hann var á öðru aldursári.
Hann var á Hamri 1925 með föður sínum, Sigríði stjúpu sinni og systkinum sínum nema Guðbjörgu, en hún var í fóstri á Akri.
Fjölskyldan fluttist að Rotum u. Eyjafjöllum 1928.
Ágúst fór til sjós, sigldi á Skaftfellingi VE-33 í 3 ár til Englands á stríðsárunum, átti þá heimili á Heiðarvegi 34.
Hann tók vélstjórapróf og vann hjá Rafveitunni, Þurrkhúsinu og einnig til sjós bæði við eigin útgerð og hjá öðrum.
Þá starfaði Ágúst einnig fyrir sjómannafélagið Jötun í mörg ár. Eftir eldgos 1973 starfaði Ágúst sem fiskmatsmaður hjá Fiskmati ríkisins þar til embættið var lagt niður.
Síðustu ár starfsævinnar vann Ágúst sem forstöðumaður hjá Kertaverksmiðjunni Heimaey.
Þau Lovísa eignuðust Pál Guðjón á Lögbergi 1948, giftu sig 1949, eignuðust Helgu Guðbjörgu á Lögbergi 1951, en voru komin að Hólagötu 8 við fæðingu Hrannar 1954.
Gunnar Ágúst lést 2000 og Lovísa 2017.

I. Kona Ágústs, (4. júní 1949), var Ingibjörg Lovísa Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1930, d. 9. október 2017.
Börn þeirra:
1. Páll Guðjón Ágústsson, f. 21. nóvember 1948 á Lögbergi.
2. Helga Guðbjörg Ágústsdóttir, f. 10. september 1951 á Lögbergi.
3. Hrönn Ágústsdóttir, f. 2. október 1954 á Hólagötu 8.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.